Málfrelsi, meiðyrði og mútugreiðslur Hjörvar Sigurðsson skrifar 31. mars 2026 07:19 „Tekið er fram að tjáningarfrelsi hennar sé ekki heft heldur sé henni frjálst „að viðhafa hver þau ósannindi sem henni hugnast“. Hins vegar verði hún að ábyrgjast þau fyrir dómi.“ [1] Þessi einstaklega Orwellísku orð kjarna fullkomlega sýn alltof margra á vinstri væng stjórnmálanna á málfrelsi og skoðanafrelsi almennt. Ítrekað er því haldið fram að málfrelsi, og þar með skoðanafrelsi, sé ekki skert þegar orðræðu almennings eru settar skorður af hinu opinbera. „Frelsi til tjáningar en ekki frelsi frá afleiðingum“ er slagorð sem maður rekst reglulega á ráfi maður óvart inn á umræðusvæði vinstri manna á netinu. Þetta er augljóslega rangt. Eigir þú í hættu á að vera refsað af hinu opinbera fyrir tiltekin ummæli ertu bersýnilega ekki frjáls til að láta frá þér ummælin – ekki nema í mjög svo heimspekilegum skilningi. Lög gegn meiðyrði eru takmörkun á málfrelsi fólks. Þó má færa rök fyrir því að slík takmörkun sé réttlætanleg. Sjálfur er ég sammála því. Þó þarf að halda því til haga að það er grundvallarmunur á því að fullyrða um eitthvað og að álykta. Það er skiljanlegt að vilja takmarka rétt fólks til þess að halda fram sekt einhvers, hafi ekki verið sýnt fram á það í gegnum dómstóla, en sá sem sætir slíkum ásökunum getur oft á tíðum ekki hrakið þær þar sem erfitt getur verið að sanna að eitthvað hafi ekki gerst. Það er hins vegar annað að vilja takmarka rétt fólks til þess að draga ályktun út frá upplýsingum og gögnum og tjá hana. Slíkt er ekki réttlætanlegt í samfélagi sem virðir sannleiksleitina og frelsi einstaklingsins – með öðrum orðum, frjálslyndu samfélagi. Í viðtali við Guðrúnu Hafsteinsdóttur í Spursmálum 28. nóvember lýsti Guðrún því fram að hún „leiði að því líkum“ að samtökin Solaris hafi beitt mútugreiðslum til að koma Palestínsku fólki yfir til Egyptalands. Þetta er auðvitað fullkomlega eðlileg ályktun vitandi það að samtökin söfnuðu pening til þess að koma fólki í gegnum ein lokuðustu landamæri heims á svæði þar sem mútugreiðslur eru algengar og gífurleg reynsla er af smygli yfir þessi tilteknu landamæri og að samtökin hafa ekki, að því er ég best veit, útskýrt í hvað peningurinn fór né heldur hvernig nákvæmlega þau fengu það í gegn að fá þessu fólki hleypt yfir landamærin. Ég hef áður skrifað hér um mikilvægi málfrelsis og þá skoðun mína að stigmagnandi aðför að málfrelsi í okkar litla frjálsa horni þessa heims sé okkar helsta ógn samtímans. [2] Án málfrelsis er ekkert réttlæti. Enginn sannleikur. Engar framfarir. Aðeins hnignun, óréttlæti og fáfræði. Það er allra okkar sem vilja búa áfram í frjálsu samfélagi að standa vörð um þessa grundvallarforsendu þess. Höfundur er tölvunarfræðingur. [1] https://www.visir.is/g/20262863313d/gudrunu-frjalst-ad-fara-med-osannindi-en-thurfi-ad-abyrgjast-fyrir-domi [2] https://www.visir.is/g/20252812216d/malfrelsi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tjáningarfrelsi Hjörvar Sigurðsson Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar