Fæðuöryggi byrjar hér heima Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 2. apríl 2026 08:00 Páskarnir eru tími kyrrðar og íhugunar. Tími þegar margir staldra við og horfa fram á veginn. Þess vegna er ekki úr vegi að velta því fyrir sér um páskana hvort fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar gefi raunverulega tilefni til bjartsýni. Svarið, miðað við það sem nú liggur fyrir, er því miður nei. Fjármálaáætlunin var kynnt í síðustu viku og Alþingi mun ræða hana eftir páska. Hún á að vera vegvísir til næstu ára. Hún á að sýna hvernig stjórnvöld ætla að styrkja samfélagið, hvaða málaflokka þau setja í forgang og hvernig þau sjá framtíðina. En þegar áætlunin er lesin með hliðsjón af fæðuöryggi, nýliðun í landbúnaði og byggðastefnu blasir ekki við sérlega björt mynd. Heimurinn er að vakna. En hvað með okkur? Fæðuöryggi er ekki lengur hugtak sem við lesum um í gömlum kennslubókum. Þjóðir um allan heim eru að endurmeta eigin getu til innlendrar matvælaframleiðslu, setja sér skýr markmið og fjárfesta í innviðum og þar með framtíðinni. Ísland er eyþjóð sem reiðir sig að verulegu leyti á innflutt aðföng. Við erum því berskjaldaðri en margir vilja viðurkenna eða átta sig hreinlega á. Aukinn órói í alþjóðamálum og truflanir í aðfangakeðjum undanfarnar vikur og misseri hafa minnt okkur á þá stöðu. Orðasalat í stað aðgerða Í stefnumótun málefnasviðs landbúnaðar í nýrri fjármálaáætlun er að finna heldur bragðlitið orðasalat um verðmætasköpun, auðveldari nýliðun og eflingu fæðuöryggis. Þetta eru falleg orð. En falleg orð tryggja ekki nýliðun og leiða ekki til aukinnar framleiðslu heilbrigðra matvæla ein og sér. Tölurnar segja sína sögu. Fjárheimildir málefnasviðs landbúnaðar dragast saman á tímabilinu, úr 25.872 milljónum króna árið 2027 niður í 25.296 milljónir árið 2031. Þetta er skýrt merki um að ríkisstjórnin taki þennan málaflokk ekki nægilega alvarlega. Hvar eru aðgerðirnar? Stærsti veikleiki áætlunarinnar er að engar raunverulegar aðgerðir eru tilgreindar um nýliðun í landbúnaði eða matvælaframleiðslu. Hvar eru tillögurnar um betra aðgengi frumkvöðla að fjármagni? Hvar er stuðningurinn við ungt fólk sem vill hefja búskap? Hvar er skýr sýn á kynslóðaskipti, svo bændur geti afhent bú rekstrarhæfum arftökum í stað þess að hætta einfaldlega? Nýjar rætur Nýjar rætur er ein af þeim hugmyndum sem Framsókn hefur sett fram til að styðja við nýliðun í matvælaframleiðslu og tengdri nýsköpun. Hugmyndin er sú að nýliði finni jörð eða land sem hentar starfseminni og geri kauptilboð í eignina. Í stað þess að viðkomandi þurfi sjálfur að bera allan kostnaðinn frá fyrsta degi gangi ríkið tímabundið inn í kaupin. Frumkvöðullinn fær þannig svigrúm til að byggja upp rekstur og skapa þekkingu og verðmæti, en hefur síðan kauprétt að eigninni eftir 3–5 ár ef starfsemin hefur gengið upp. Að sjálfsögðu þyrfti að útfæra slíkt fyrirkomulag nánar, meðal annars með skýrum skilyrðum, fyrirvörum og reglum um mat á rekstrarhæfni, tímalengd, áhættudreifingu og réttarstöðu aðila. Takist verkefnið ekki situr ríkið eftir með eign sem hefur sjálfstætt verðmæti og getur vel hækkað í verði með tímanum. Þetta er aðeins ein afmörkuð leið, en hún sýnir hvernig hægt er að auðvelda nýju fólki að hasla sér völl án þess að öll áhættan sé lögð á herðar þess strax í upphafi. Fjárfesting er lykilatriði Að yrkja landið og framleiða mat næstu ár kallar á fjárfestingu í tækni, þekkingu og innviðum. Neytendur gera í auknum mæli kröfur um gæði, rekjanleika og fjölbreytni í vöruframboði. Þessar kröfur munu ekki minnka. Þær munu aukast. Ef við ætlum að mæta þeim með innlendri framleiðslu þarf að efla garðyrkju, kornrækt og aðra akuryrkju og skapa hvata til fjölbreyttari og gæðaríkari framleiðslu. Það þarf stefnu. Það þarf forgangsröðun. Það þarf fjármagn. Rætur þurfa næringu Páskar minna okkur á að ekkert vex af sjálfu sér. Það þarf jarðveg, næringu og umhyggju. Það á jafnt við um fólk, byggðir og matvælaframleiðslu. Ríkisstjórnin hefur lagt á borð bragðdauft orðasalat með núgildandi fjármálaáætlun. En þjóðin á skilið meira en það. Hún á skilið skýrar aðgerðir, raunverulega forgangsröðun og stjórnvöld sem þora að taka fæðuöryggi og nýliðun alvarlega. Framtíðin bíður ekki. Gleðilega páska. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Ingi Pétursson Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hvar slær hjarta kjósenda? Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Fyrirmyndir Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Kosningar og leikskólamál Sigríður Clausen skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar Skoðun Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Fullveldið er falið í gagnaeign Hjörtur Smárason skrifar Skoðun Borgar menning sig? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hvar slær hjarta kjósenda? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Sjá meira
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun
Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar
Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun