Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. apríl 2026 21:44 Dominykas Milka var rekinn úr húsi fyrir sinn þátt í slagsmálunum. vísir / guðmundur Allt sauð upp úr undir lok leiks Grindavíkur og Njarðvíkur í fyrstu umferð úrslitakeppni Bónus deildar karla. Slagsmál brutust út og lögreglan þurfti að skerast í leikinn. Atvikið má sjá hér fyrir neðan.
Klippa: Slagsmál í leik Grindavíkur og Njarðvíkur Njarðvík var búið að snúa leiknum við og taka forystuna þegar til kastanna kom á milli Dwayne Lautier og DeAndre Kane. Kristófer Breki Gylfason, leikmaður Grindavíkur, var snöggur að svara fyrir olnbogaskotið sem Kane fékk frá Lautier. Fleiri leikmenn blönduðu sér svo í málið. Ekki nóg með leikmenn liðanna hjóluðu í hvorn annan heldur voru stuðningsmenn líka mættir út á gólf. Öryggisgæslan réði ekki við allan fjöldann og lögreglan stökk af stað til að skerast í leikinn. Stuðningsmaður Njarðvíkur sá ekki síðustu mínútur leiksins. vísir / guðmundur Á endanum tókst að róa mannskapinn niður en þá þurftu dómararnir að telja saman allar villurnar og komast að einhverri skynsamlegri niðurstöðu. Sem reyndist tímafrekt. Jordan Semple var í miðjum átökunum.vísir / guðmundur Dominykas Milka var rekinn út úr húsi fyrir sinn þátt í slagsmálunum, nokkrir leikmenn fengu óíþróttamannslegar villur og þjálfarar beggja liða fengu tæknivillur. En sá sem lét mest fyrir sér fara í þessu slagsmálum, Jordan Semple, slapp við refsingu. Eftir öll þessi læti stóð Njarðvík uppi sem sigurvegari í fyrsta leik einvígisins. Lesa má um leikinn í uppgjörinu hér fyrir neðan.
Bónus-deild karla UMF Njarðvík UMF Grindavík Mest lesið Mark ársins í Bestu deildinni komið? Íslenski boltinn ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Íslenski boltinn Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sport Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Yamal felldi tár en ætti að ná HM Fótbolti Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Íslenski boltinn Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Fótbolti Fleiri fréttir Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Pargo: Þurfum að vinna tvo leiki í viðbót Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Martin með stigahæstu mönnum í sigri „Við ætlum ekki að nota það sem einhverja hækju“ Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Sjá meira