Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Freyja Þórisdóttir skrifar 3. apríl 2026 09:53 Ágústa Ágústsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, telur líklegt að vegaaðstoð fyrir austan muni eiga í fullu fangi með að losa bíla í dag og næstu daga. Alþingi/Vísir/Vilhelm Hátt í fimmtíu bílar voru fastir á veginum sem liggur yfir Möðrudalsöræfi á milli Jökuldals og að Vopnafjarðarafleggjaranum í gær. Harðduglegur strákur sinnti vegaaðstoð og reyndi eftir fremsta megni að losa bíla sem margir voru illa búnir og ófjórhjóladrifnir húsbílar í leigu erlendra ferðamanna.
Þetta kemur fram í myndböndum sem Ágústa Ágústsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, birti á Facebook í gær. „Þetta er alveg kostulegt, hér er eitthvað sem ætti að vera bannað með lögum á þessum tíma,“ segir hún og snýr myndavélinni svo að við blasir húsbíll sem virðist fastur þannig að hann þverar veginn. Fylgdust að eftir fremsta megni „Það er jeppi hérna útbúinn sem ég hringdi í áðan, ég lenti aðeins út af fyrir vegkant. Ég hringdi í vegaaðstoð og hann kom og við erum hérna saman að ferðast með örugglega þrjátíu eða fimmtíu bíla í halarófu fyrir aftan okkur,“ segir Ágústa. Hún hafi fengið nokkra ferðamenn til að snúa við og fara til baka. Strákurinn, í jeppanum frá neyðaraðstoð Austurlands, og Ágústa voru í símasambandi á leið sinni yfir öræfi en hann þurfti ítrekað að stöðva bílinn og stökkva út til að athuga með ökumenn og aðra farþega. „Þá ætlum við að halda áfram, við fórum fram hjá ferðamönnunum, getum ekkert hjálpað þeim. Það voru bílar áður en við komum að húsbílnum sem voru fastir í skafli, á veginum sjálfum,“ segir hún og bætir við að sér þyki glórulaust að Vegagerðin hafi ekki verið búin að loka umferð um veginn. Allir nema einn heltust úr lestinni Hún segir frá því að strákurinn frá vegaaðstoð hafi bjargað fólki inn í jeppa til sín á einum tímapunkti. „Hér er hann að bjarga fólki bara inni í bíl, þessi öðlingsstrákur. Þetta er algjör snillingur þessi strákur. Við ætlum að reyna að gera þetta saman hérna af einhverju viti,“ segir Ágústa. Hún minnist þó á að hann geri líklega meira en hún þar sem hún sé sjálf ekki á útbúnum jeppa eins og strákurinn. „Hvers vegna er yfirhöfuð leyfilegt að vera með húsbíla sem eru sérstaklega ekki fjórhjóladrifnir á þessum tíma árs? Þetta er mér algjörlega hulin ráðgáta,“ segir Ágústa í þann mund sem þau keyra fram hjá tveimur húsbílum sem sitja fastir. Að endingu komust Ágústa og strákurinn fram hjá Vopnafjarðarafleggjaranum og yfir í skárri færð. Hann hafi leitt för en hún fylgt fast á eftir með halarófuna í skottinu, að hún hélt. „Á endanum uppgötvum við að það var bara einn bíll fyrir aftan mig. Allir hinir hafa orðið stopp hjá húsbílunum, væntanlega. Þannig að það bíður stráksins einhver súpa,“ segir Ágústa og ítrekar að það hefði átt að loka veginum miklu fyrr. Hún segist hafa rætt við ferðamenn sem voru frá Filippseyjum og ráðlagt þeim að snúa frekar við en að keyra áfram í blindni. Þeir hafi ekkert kunnað á bílinn. „Þetta vekur spurnir um, þegar ferðamenn eru að leigja bíla og þeir kunna ekkert á bílinn. Þeir vissu ekki hvar miðstöðin var. Með fullri virðingu fyrir þessu fólki sem var fínasta fólk,“ segir Ágústa.
Færð á vegum Múlaþing Vopnafjörður Veður Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira