Trump styður við bakið á Tiger Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. apríl 2026 21:47 Vanessa var á svæðinu þegar Tiger keppti skömmu fyrir slysið. James Gilbert/TGL/TGL Golf via Getty Images Vanessa Trump hefur sent sínum heittelskaða Tiger Woods stuðningskveðju á samfélagsmiðlum. „
Elska þig,“ skrifar Trump með lyndistákni tveggja rauðra hjarta í hringrásarfærslu á Instagram. Með skilaboðunum birti hún mynd af þeim á faðmast á góðri stundu. Vanessa Trump stendur með sínum manni. instagram Tiger hefur ekki átt sjö dagana sæla en hann er á leið í meðferð eftir að hafa ollið bílslysi og verið ákærður fyrir akstur undir áhrifum. Vanessa er fyrrum eiginkona Donalds Trump yngri og saman eiga þau fimm börn. Leiðir þeirra skildu árið 2018 en Vanessa hélt nafninu og hefur síðan átt í ástarsambandi við kylfinginn Tiger Woods undanfarið ár eða svo. Fjölskyldurnar eru nátengdar og börn parsins eru bæði góð í golfi, Kai Trump hefur til að mynda tekið hring með Charlie Woods. Tiger reyndi líka að nýta tengsl sín við Bandaríkjaforsetann Donald Trump, fyrrum tengdaföður Vanessu, þegar hann var handtekinn eftir að hafa ollið bílslysi á dögunum. Í myndbandi úr líkamsmyndavél lögreglumanns á vettvangi kemur fram að stuttu eftir slysið segir Woods lögreglunni að hann hafi talað við forsetann, áður en hann lýsir yfir undrun þegar hann er handtekinn.
Golf Bílslys Tigers Woods Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira