Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 3. apríl 2026 18:17 Roberto er ýmsu vanur þegar tyrfin íslenska er annars vegar. Vísir/Rafn Roberto Luigi Pagani varð í dag fyrsti maðurinn sem hefur ekki íslensku að móðurmáli til að lesa Passíusálmana í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa. Sálmarnir voru að vanda fluttir í heild sinni í kirkjunni og átta lesarar skiptu þeim á milli sín að þessu sinni.
Lesturinn hófst klukkan eitt í dag og stendur til um hálf sjö í kvöld. Björn Steinar Sólbergsson organisti var tónlistarstjóri. Steinar Logi Helgason organisti og kórstjóri og Jóna G. Kolbrúnardóttir söngkona fluttu tónlist á milli sálma og í lok dags. Vildi að fleiri kynntust sálmunum Fjölmennt var í kirkjunni og talsverð umferð af gestum. Sumir sátu klukkutímunum saman en aðrir stöldruðu við í styttri eða lengri tíma. Roberto var feginn að sjá hve margir gerðu sér ferð í kirkjuna þessa páskana. „Það var mjög gaman að sjá hve margir mættu. Þetta er svo mikilvægur partur af menningararfinum og ég myndi vilja að fleiri fengju að kynnast þessu,“ sagði hann þegar næði gafst til samtals á milli sálma. Hann flutti sálmana af mikilli innlifun.Vísir/Rafn Næðið var þó ekki meira en það að ítrekað var gert hlé á meðan kirkjugestir þökkuðu honum innilega fyrir flutning sinn. Roberto er aðjúnkt í íslensku við Háskóla Íslands, með meistarapróf í íslenskum miðaldafræðum og doktorspróf í íslenskum málvísindum. Auk alls þessa hefur hann verið búsettur hér á landi í á annan áratug og hlotið íslenskan ríkisborgararétt en upphaflega kemur hann frá Ítalíu. Mikil ábyrgð Miðað við þetta er kannski ekki við öðru að búast en að hann stæði sig prýðilega við lesturinn en Roberto sjálfum fannst þetta ekkert tiltökumál. „Þetta var mjög krefjandi verkefni og ég fann fyrir mikilli ábyrgð enda fyrsti einstaklingurinn af erlendu bergi brotinn til að lesa,“ sagði hann. Hann tók fram að sem miðaldafræðingur hafi hann lesið alls konar forna og tyrfna íslenska texta en árnýaldarmál Hallgríms Péturssonar með sínum dönsku- og latínuslettum sé aðeins annað.
Trúmál Páskar Innflytjendamál Íslensk tunga Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira