Páskar

Fréttamynd

Sjúkra­húsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fara fram á að starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri skili páskaeggjum sem það fékk að gjöf frá Smáríkinu, sem opnaði í bænum í vikunni. Forstjóri sjúkrahússins segist hingað til hafa tekið við öllum gjöfum og ekki gert upp á milli gefenda. Verkferlar verði þó skoðaðir. 

Innlent
Fréttamynd

Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi

Margir bændur reiða sig að verulegu leyti á tekjur af sölu veiðileyfa. Það er engum blöðum um það að fletta að tekjur af hefðbundnum landbúnaði einum og sér hafa víða ekki verið nægar til að standa undir blómlegum búrekstri, nýliðun og eðlilegri uppbyggingu í sveitum landsins.

Skoðun
Fréttamynd

Páskar: Ef þú mættir velja ein­hvern til að kross­festa

Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft.

Lífið
Fréttamynd

Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid

Samkvæmt eftirgrennslan Vísis var byrjað að gefa starfsfólki Landspítalans páskaegg í Covid sem var fyrir um sex árum. Hér er því varla hægt að tala um hefð en ákvörðun stjórnenda að hætta með páskaeggjagjafir lagðist hins vegar afar þungt í margan starfsmanninn.

Innlent
Fréttamynd

Páskabingó Blökastsins

Páskabingó Blökastsins fór fram í beinni útsendingu á Vísi og sjónvarpsstöðinni Sýn Vísi í kvöld. Þetta var í fjórða skiptið sem þríeykið hélt Páskabingó og var þetta það veglegasta til þessa. Útsendingu er nú lokið.

Lífið
Fréttamynd

Með páska­egg á and­litinu

Í engilsaxneskum löndum er haft við orð að þeir sem hagi sér ósæmilega eða verði sér til minnkunar sitji uppi með ,,egg á andlitinu.” Um þessar mundir er ríkisstjórn Íslands með páskaegg á andlitinu.

Skoðun
Fréttamynd

Stöldrum við

Nú í dymbilviku undirbúa kristnir menn páskahátíðina sem framundan er. Hún er margvísleg og má vera alls konar. Sum okkar fara í frí, á skíði, til Tene eða aldrei suður og hlusta á tónlist. 

Skoðun
Fréttamynd

Engin egg í Skaftahlíðina

„Við sendum Helga Vilhjálmssyni og hans góða starfsfólki bestu kveðjur og þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf.“ Svo segir í pósti til allra starfsmanna Landspítalans sem Vísir hefur undir höndum.

Innlent
Fréttamynd

„Við krossum bara fingur“

Búast má við umhleypingarsömu veðri í dag og á morgun en síðan mun rætast ágætlega úr því yfir páskahelgina. Gular veðurviðvaranir tóku gildi á Austurlandi klukkan tíu í dag og þá hafa viðbragðsaðilar haft í mörgu að snúast í Þrengslum og á Hellisheiðinni sem var lokað í tvígang. 

Innlent
Fréttamynd

„Kostuðu páska­eggin sjö hundruð þúsund krónur?!“

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, eyddi alls 697.133 í páskaegg og umbúðir til handa ráðherrum og starfsfólki ráðuneytisins. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins furðar sig á kostnaðinum og telur þetta birtingarmynd raunveruleikarofs þegar kemur að opinberum útgjöldum.

Innlent
Fréttamynd

Færri strætó­ferðir um páskana

Strætó verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana á höfuðborgarsvæðinu og á sunnudags- og laugardagsáætlun landsbyggðinni. Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina.

Innlent
Fréttamynd

Páskarnir líta þokka­lega út þrátt fyrir kulda

Páskaveðrið lítur út fyrir að ætla að sleppa þokkalega, þótt enn sé nokkur óvissa um seinni hluta helgarinnar. Samkvæmt veðurfræðingi eru engin meiriháttar óveður í kortunum, en skírdagur gæti orðið leiðinlegur sunnanlands og þar má búast við að færð verði ekki alls staðar góð.

Innlent
Fréttamynd

Starfs­menn ráðu­neytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una öl­musu for­eldra

Stóra páskaeggjahallærið virðist há fleirum en starfsmönnum Landspítalans. Skólastjóri Laugarnesskóla furðar sig á því að menntamálaráðuneytið hafi varið tæplega sjö hundruð þúsund krónum í páskaegg frá Nóa Siríus af stærðinni sjö í sérútbúnum, litprentuðum umbúðum á meðan starfsmenn Laugarnesskóla urðu að láta sér duga páskaegg númer eitt sem foreldrar í hverfinu gáfu þeim.

Innlent
Fréttamynd

Ekki hægt að fá bíla­stæði án bókunar

Frá og með deginum í dag og fram yfir páska verður aðeins hægt að leggja bílum í almennum stæðum, á P3, við Keflavíkurflugvöll ef búið er að bóka stæði fyrir fram. Ekki er hægt að aka inn á bílastæðið nema bókun sé til staðar. 

Neytendur
Fréttamynd

Hokin af reynslu og vill stórt egg fyrir strákinn

Páskaeggjavertíðin er í hámarki um þessar mundir en alls eru framleidd á aðra milljón súkkulaðieggja fyrir súkkulaðiþyrsta landsmenn. Í verksmiðju Góu var framleiðsla á páskaeggjum fyrir starfsfólk Landspítalans í fullum gangi.

Innlent
Fréttamynd

Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verk­föll yfir páskana

Yfir 1.500 flugvallarstarfsmenn víða á Kanaríeyjum boða verkföll í kringum páskana eftir að kjaraviðræður vinnuveitenda og stéttarfélaga sigldu í strand. Verkföll á Tenerife Sur-flugvelli, sem flogið er til frá Íslandi, eru fyrirhuguð 28. og 29. mars og 2.-6. apríl. 

Erlent
Fréttamynd

Ragnar brosir allan hringinn eftir sím­tal frá Góu og Omnom

Ragnar Freyr Ingvarsson, jafnan þekktur sem læknirinn í eldhúsinu, segist brosa allan hringinn í kjölfar símtals þar sem hann ræddi við „ljúfa fólkið í Góu og Omnom“ um að þau væru tilbúin að leysa stóra Páskaeggjamálið sem fréttir hafa borist af síðastliðna daga.

Innlent
Fréttamynd

Gremja innan Land­spítala vegna stóra páska­eggja­hallærisins

Ragnar Freyr Ingvarsson, sem bæði starfar sem sjálfstætt starfandi læknir sem og inni á Landspítalanum, furðar sig á forgangsröðunni en á Landspítalanum hefur verið tekin ákvörðun um að gefa starfsfólki ekki páskaegg í ár vegna niðurskurðarkröfu. Á sama tíma fær starfsfólk í heilbrigðisráðuneytinu páskaegg og ráðherra gefur ráðherrum veglegt egg.

Innlent
Fréttamynd

Reykt þorsk­hrogn og handgerð páska­egg í Hörpu

Þurrkuð lambahjörtu, handgerð páskaegg, argentískar skrautsmákökur, grænlensk grálúða og reykt þorskhrogn eru meðal þess, sem boðið verður upp á í Hörpu um helgina á Matarmarkaði Íslands. Um 50 framleiðendur kynna vörur sínar og bjóða upp á smakk.

Lífið
Fréttamynd

„Heims­markaðs­verð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð”

Helgi Vilhjálmsson, forstjóri Góu, segir að þegar horft sé til verðs í verslunum megi sjá að fleiri þættir ráði verðlagningu en aðeins heimsmarkaðsverð á kakói verði á súkkulaði. Heimsmarkaðsverð á kakói hrundi í síðasta mánuði og Helgi segir fyrirtækið tilbúið að taka hluta af sveiflum á sig.

Neytendur
Fréttamynd

Boðar ó­dýrara súkku­laði í sumar vegna hruns á kakóverði

Framkvæmdastjórar Nóa Síríus og Freyju eiga ekki von á því að verð á súkkulaði lækki mikið núna um páska þó svo að heimsmarkaðsverð á kakói hafi ekki verið lægra í þrjú ár. Stjórnvöld í Gana og á Fílabeinsströndinni lækkuðu verðið vegna lítillar eftirspurnar. 

Neytendur
Fréttamynd

Frí­dagar í klemmu

Óvenju marga frídaga ber upp á fimmtudegi í ár. Strax eftir páska komu sumardagurinn fyrsti (fimmtudaginn 24. apríl) og frídagur verkalýðsins (fimmtudaginn 1. maí). Framundan eru síðan uppstigningardagur (fimmtudaginn 29. maí) og þjóðhátíðardagurinn (fimmtudaginn 17. júní). Árið 2025 er því sannarlega ár klemmudaganna.

Skoðun