Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar 4. apríl 2026 10:02 Nei‑sinnar á Íslandi hafa beitt ýmsum rökum til að draga upp neikvæða mynd af mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu. Einn þeirra er Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur og forstjóri fasteignafélagsins Heima. Í nýlegri grein í Morgunblaðinu velti hann því fyrir sér hvaða áhrif það hefði ef ríki í Suðaustur‑Evrópu — sem eru almennt aftar á merinni efnahagslega — fengju aðild að ESB. Með þessu leitast hann við að skapa þau hughrif að aðild Íslands væri óhagstæð vegna þess að við þyrftum sífellt að „niðurgreiða“ fátækari ríki álfunnar. Þessi röksemdafærsla er þó götótt og hér eru helstu ástæðurnar. Í fyrsta lagi. Reiknireglan fyrir framlög aðildarríkja er skýr og stöðug. Stærsti hluti framlags hverrar þjóðar byggir á hlutfalli af vergri þjóðarframleiðslu hennar sjálfrar. Hugsanlega myndi framlag Íslands eitthvað hækka ef fleiri þjóðir gengju inn en það er líka raunin með framlög okkar í EES. Er Halldór Benjamín að leggja til að við segjum okkur úr EES af því að fleiri lönd hafa gengið til liðs við Evrópusambandið? Í öðru lagi; ríki sem ganga í ESB upplifa almennt hraðan efnahagsvöxt. Reynslan sýnir að ný aðildarríki ESB verða ekki fátækari, heldur þvert á móti. Tökum til dæmis löndin sem gengu í Evrópusambandið árið 2004. Rúmenía hefur aukið landsframleiðslu sína um 558%, Búlgaría um 500%, Litháen um 405%, Lettland um 336% og Eistland um 305%. Öll hafa þessi lönd upplifað hraðan hagvöxt eftir aðild. Þetta eru gífurlegar framfarir – bæði í verðlagi og kaupmætti. Þar með greiða löndin, eðlilega, sífellt meira inn í sameiginlega sjóði eftir því sem þau verða betur stæð. ESB aðild hefur því, í reynd, styrkt efnahagslega stöðu þessara ríkja, ekki grafið undan henni. Eitt af grundvallarmarkmiðum Evrópusambandsins er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði milli ríkja álfunnar. Tölurnar frá nýjum aðildarríkjum sýna að þetta markmið gengur eftir. Með bættri innviðauppbyggingu, auknum viðskiptum, frjálsum fólksflutningum og auknum fjárfestingum hafa þessi lönd náð miklum stökkbreytingum í lífskjörum. Það er ekkert leyndarmál að Ísland er vel stætt ríki og íslenska ríkið myndi að öllum líkindum greiða meira inn í ESB en það fengi til baka. Á móti kemur að íslenskra stofnanir og sveitarfélög gætu sótt um veglega styrki í innviðauppbyggingu úti á landi. Reynslan af EES samstarfinu frá upphafi hefur sýnt að við Íslendingar höfum alltaf fengið meira til baka en við höfum greitt inn til ESB. En það er ekki aðalatriðið. Það sem skiptir mestu máli er að við myndum leggja okkar af mörkum til að stuðla að meiri jöfnuði í Evrópu, sem skilar sér aftur í auknum viðskiptum, betri lífskjörum alls staðar, og minni líkum á átökum. Það er arðbær fjárfesting í bæði framtíð Íslands og framtíð Evrópu! Höfundur er með M.Sc. gráðu í Evrópufræðum frá London School of Economics og hefur yfir 30 ára reynslu af ýmsu Evrópusamstarfi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Andrés Pétursson Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar