„Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. apríl 2026 19:36 Elías Már segist vera að nálgast sitt besta leikform. Víkingur Elías Már Ómarsson spilaði allan leikinn og skoraði eitt mark í 2-4 sigri Víkings gegn Fram í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Hann segir slúðursögur um sitt leikform ekki á rökum reistar.
Nikolaj Hansen er að glíma við smávægileg meiðsli. Elías var því í byrjunarliði Víkings í dag og ræddi við Vísi eftir leik. „Við byrjuðum svolítið brösuglega. Vorum að missa þá inn fyrir okkur og það þurfti bara einn langan bolta til að komast í gegn í fyrsta markinu, en svo komum við sterkir til baka. Við skorum tvö mörk í fyrri hálfleik og svo þegar þeir jafna í seinni hálfleik þá vorum við fljótir að komast aftur yfir. Gott að bæta síðan við fjórða markinu bara strax og gera út af við leikinn. Við héldum boltanum og gerðum þetta erfitt fyrir þá,“ sagði Elías eftir leik. Elías skoraði þriðja mark Víkings aðeins mínútu eftir að Fram hafði jafnað. Hann hafði verið óheppinn að skora ekki mark fyrr í leiknum, skotið í stöngina í eitt skipti og í annað skipti rétt framhjá. En var Elías sáttur með sína frammistöðu í leiknum? „Þokkalega. Ég veit að ég gert mun betur en þetta eru bara fyrstu leikirnir sem við erum að spila. Maður er að koma sér betur og betur inn í þetta. Tímabilið er bara að byrja og ég hef fulla trú á því að maður verði kominn í enn þá betra stand bráðum. Það er mikilvægt líka að fá 90 mínútur eins og í dag, það hjálpar leikforminu.“ Töluvert hefur einmitt verið talað um leikform Elíasar á undirbúningstímabilinu, eða skortinn þar á. Sumir gengu meira að segja svo langt að segja að Víkingur vildi losa Elías frá liðinu en sú varð ekki raunin. Hann spilaði allan leikinn í dag og segist ekki vera langt frá sínu besta. „Nei, nei. Mér persónulega finnst menn aðeins vera að ýkja en auðvitað var ég að koma eftir langt frí og úr töluvert öðruvísi fótboltamenningu þarna í Kína. Þannig að ég hef verið aðeins lengur frá fótbolta en ég er vanur. En mér finnst menn vera aðeins að ýkja þegar kemur að því að segja alla þessa hluti. En það er bara þannig, menn hafa alltaf eitthvað að segja og það er bara skemmtilegt. Maður er að komast betur inn í þetta. Maður er að komast í betra og betra form. Það er mikilvægt fyrir mig.“
Besta deild karla Mjólkurbikar karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Spánverjar heimsmeistarar Fótbolti Strákarnir fengu silfur á EM Körfubolti „Satt best að segja er mér drullusama“ Íslenski boltinn Hetjan Torres: „Þetta voru örlögin“ Fótbolti „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ Íslenski boltinn Infantino veðurtepptur og Spánn hætti við æfingu Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Fram 1-2 | Upp úr fallsæti með þriðja sigrinum í röð Íslenski boltinn Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Fleiri fréttir „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ „Erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja“ Uppgjörið: ÍBV - KA 2-2 | Fjörugt í Eyjum og sjö spjöld á loft Uppgjörið: Víkingur - Fram 1-2 | Upp úr fallsæti með þriðja sigrinum í röð Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga „Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ „Eina leiðin er upp“ Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Fékk sigur í fimmtugsafmælisgjöf Topplið Lengjudeildarinnar fær liðsstyrk frá Stjörnunni Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Bríet Fjóla keypt til Þróttar Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Sjá meira