Masters-miðvikudagur á Sýn Sport Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2026 09:31 Scottie Scheffler klæðir Rory McIlroy í græna jakkann fyrir ári síðan en þeir hafa unnið tvö síðustu Mastersmót í golfi. Getty/Ben Jared Fyrsta risamót ársins hefst á morgun, fimmtudag, en það er heldur betur tekið forskot á veisluna á SÝN Sport 2 í dag.
Í stuttu máli má segja að það sé Masters-miðvikudagur á SÝN Sport. Fjörið byrjar klukkan 16.50 í dag þegar upphitunarþáttur í umsjón Rikka G. hitar upp fyrir mótið með sérfræðingum. Rikki og félagar munu þar fjalla um stærstu stjörnurnar og rifja upp sögu Masters-mótsins sem fer nú fram í nítugasta sinn. Strax á eftir, eða klukkan 18.00, hefst Par-3 keppnin. Par-3 keppnin var fyrst haldin árið 1960 og síðan þá hefur hún jafnan verið spiluð á miðvikudeginum áður en mótið hefst. Par-3 völlurinn var byggður árið 1958. Hann er níu holu völlur og er 970 metrar á lengd. Alls hafa 94 holur í höggi verið slegnar í sögu keppninnar, en metið var slegið árið 2016 þegar níu voru slegnar. Þá slógu Rickie Fowler og Justin Thomas holu í höggi hvor á eftir öðrum á fjórðu holu, þar sem þeir spiluðu í ráshópi með ríkjandi meistara, Jordan Spieth. Í þessari keppni mega kylfingar nota börnin sín sem kylfubera sem hjálpar til við að skapa fjölskylduvænt andrúmsloft. Sigurvegari Par-3 keppninnar, sem spiluð er daginn áður en mótið hefst, vinnur kristalsskál. Eftir að keppninni lýkur verður sýndur heimildaþátturinn „1986“ sem fjallar um sigur Jack Nicklaus á Masters-mótinu árið 1986. Nicklaus vann þá sinn átjánda og síðasta risatitil á atvinnumannaferlinum með sögulegum sigri með eins höggs mun. Hann lék lokahringinn á 65 höggum (−7), þar af síðari níu holurnar á 30 höggum (−6), og endaði með heildarskor upp á 279 högg (−9). Þá 46 ára gamall varð hann elsti sigurvegari Masters-mótsins og sá næstelsti til að sigra á risamóti. Að lokum er á dagskrá „Meistaraverk Rory McIlroy“ sem er viðtalsþáttur þar sem Norður-Írinn Rory McIlroy fer yfir sigurinn á Masters 2025. McIlroy kláraði alslemmuna með sigri sínum í fyrra og hafði þar með unnið öll risamótin en aðeins fimm aðrir hafa náð því í sögunni. Á morgun hefst síðan bein útsending frá fyrsta degi Mastersmótsins 2026 klukkan 17.00 á SÝN Sport. Sýnt verður beint frá öllum keppnisdögum mótsins.
Masters-mótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira