Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir og Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifa 9. apríl 2026 13:01 Traust aðgengi að orku er ein af grunnstoðum samfélagsins og forsenda þess að daglegt líf fólks og fyrirtækja gangi eðlilega. Óveðrið sem gekk yfir landið annan í páskum var skýr áminning um hversu viðkvæmt raforkukerfið getur verið. Það undirstrikar það sem atvinnulífið hefur lengi bent á - að orkuöryggi skiptir sköpum fyrir verðmætasköpun, samkeppnishæfni og stöðugleika í samfélaginu. Elding sem sló niður í flutningskerfi raforku olli víðtæku rafmagnsleysi á sunnanverðu landinu, þar á meðal á Keflavíkurflugvelli sem þurfti að reiða sig á varaafl. Áhrifin náðu einnig til þéttbýlissvæða þar sem rafmagnslaust var klukkustundum saman og truflanir urðu á grunnþjónustu sem samfélagið byggir á. Þótt varnarkerfi hafi virkað sem skyldi sýnir atburðarásin hversu mikið er undir þegar raforkan bregst. Þetta gerist á sama tíma og alþjóðleg staða orkumála er í sögulegri óvissu. Um allan heim hefur verð á orkugjöfum hækkað umtalsvert í kjölfar átaka í Mið-Austurlöndum og ýtt undir verðbólgu. Þetta endurspeglar hversu viðkvæmt alþjóðlegt efnahags- og atvinnulíf er gagnvart ytri orkuáföllum. Í slíkum aðstæðum verður orkuöryggi og orkusjálfstæði ríkja lykilatriði í að draga úr áhættu og auka fyrirsjáanleika. Aðgangur Íslands að innlendri, endurnýjanlegri orku hefur verið lykilforsenda samkeppnishæfni og stöðugleika og verður sífellt mikilvægari í óstöðugum heimi. Fyrir atvinnulífið hefur rafmagnsleysi víðtæk áhrif. Fyrirtæki þurfa að treysta á varaafl með tilheyrandi kostnaði, aukinni losun gróðurhúsalofttegunda og rekstraráhættu. Slíkar aðstæður endurspegla kerfi sem hefur takmarkað svigrúm til að mæta áföllum. Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað bent á að staða raforkumála á Íslandi sé alvarleg. Kerfið er komið að þolmörkum og framboð hefur ekki haldið í við vaxandi eftirspurn. Á sama tíma liggja fyrir veruleg tækifæri. Endurnýjanleg orka getur skapað verðmæti, ný störf og styrkt stöðu Íslands á alþjóðamarkaði, auk þess að vera lykilframlag til loftslagsmála. Mikilvæg skref hafa verið tekin, meðal annars með breytingum á rammaáætlun og aukinni áherslu á einföldun leyfisferla. Enn eru þó hindranir til staðar og nýleg könnun sem var lögð fyrir aðildarfyrirtæki Samorku sýnir að tveir þriðju fyrirtækja nefna einföldun leyfisveitingaferla sem lykilatriði til að styrkja innviði og auka áfallaþol. Frekari tafir hafa í för með sér skerðingar, minni fjárfestingu og töpuð tækifæri. Atburðarás síðustu daga er ekki undantekning heldur áminning. Óveðrið tekur undir það sem atvinnulífið hefur ítrekað bent á, að tryggt orkuöryggi er forsenda þess að atvinnulíf og samfélag geti þróast og staðið undir þeim áskorunum sem fram undan eru. Í nútímasamfélagi göngum við að rafmagni sem sjálfsögðum hlut. En orkuöryggi er ekki sjálfgefið. Það er afrakstur markvissrar uppbyggingar, viðvarandi viðleitni til framþróunar og ábyrgra ákvarðana. Reynslan sýnir að styrkja þurfi innviði og skapa skilyrði fyrir áframhaldandi uppbyggingu orkukerfisins. Það er jafnframt grundvöllur þess að Ísland geti staðið undir orkuskiptum og nýtt þau tækifæri sem fram undan eru. Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri á Málefnasviði Samtaka atvinnulífsinsKatrín Helga Hallgrímsdóttir, lögfræðingur Samorku Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar