Titilvörnin hefst mjög vel hjá McIlroy en DeChambeau í basli Ágúst Orri Arnarson skrifar 9. apríl 2026 20:06 Rory McIlroy hefur lokið sínum hring og er jafn Sam Burns í efsta sætinu. Hector Vivas/Getty Images Ríkjandi meistarinn Rory McIlroy átti frábæran fyrsta dag á Masters-mótinu og leiðir keppendalistann ásamt Sam Burns. Bryson DeChambeau er hins vegar í bölvuðu brasi.
McIlroy og Burns hafa báðir lokið sínum hringjum á 67 höggum, 5 höggum undir pari vallarins. Nokkur fjöldi kylfinga á þó eftir að klára sinn hring og forystan gæti því breyst. Efsti kylfingur heimslistans, Scottie Scheffler, er líklegur til að ná þeim en hann var 3 höggum undir pari eftir að hafa leikið fyrstu 9 holurnar. Two-time Masters champion Scottie Scheffler needs only three strokes to play hole No. 2. #themasters pic.twitter.com/JwxeHXw5Cf— The Masters (@TheMasters) April 9, 2026 McIlroy er ríkjandi meistarinn og margir spá því að hann verði sá fyrsti síðan Tiger Woods árið 2002 til að verja titilinn. Norður-Írinn byrjar allavega betur en í fyrra og náði forystunni í dag með fugli á 13. holu en það var einn af sex fuglum dagsins. Rory McIlroy. T1.It's been 24 years since the last successful Masters title defense.pic.twitter.com/7qgLsNUqfr— Underdog Golf (@UnderdogGolf) April 9, 2026 Margir bjuggust líka við miklu frá Bandaríkjamanninum og golffrömuðinum Bryson DeChambeau en hann olli vonbrigðum í dag. DeChambeau lauk hringnum á 76 höggum, 4 höggum yfir pari vallarins og myndi ekki ná niðurskurði eins og er. Versta holan hjá DeChambeau í dag var vafalaust 11. holan en þar þurfti hann þrjú högg til að koma sér upp úr sandgryfju. ONE. OF. US. 💀Bryson DeChambeau takes three shots from the greenside bunker on No. 11 and makes a triple bogey. He falls to +3 on the day. pic.twitter.com/QKMCrrZWVA— GOLF.com (@GOLF_com) April 9, 2026
Masters-mótið Golf Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira