Rose gerði rándýr mistök en Scheffler stóð sig stöðugt Ágúst Orri Arnarson skrifar 9. apríl 2026 23:41 Justin Rose misreiknaði sig á lokametrunum. Hector Vivas/Getty Images Justin Rose hótaði því að taka toppsætið af Sam Burns og Rory McIlroy en endaði fyrsta hringinn á Masters-mótinu illa. Sá besti, Scottie Scheffler, fór fljúgandi af stað en spilaði síðan af miklum stöðugleika. Rose setti niður sinn fjórða fugl á 13. holu og var fjórum höggum undir pari en þrír skollar og aðeins einn fugl á síðustu fimm holunum komu sér illa. „Þetta var dagur þar sem maður þurfti að sýna þolinmæði. Ég gerði það vel en svo undir lokin varð ég að aðeins ákafari og gerði nokkur mistök. Það munar svo litlu á þessu og í þetta skiptið gerði ég vitleysu. Heilt yfir er ég samt ánægður með byrjunina og ég get byggt á þessu,“ sagði Rose með sanni en hann situr í sameiginlegu 6. sæti. Sam Burns og Rory McIlroy sitja enn á toppnum, fimm höggum undir pari. Efsti kylfingur heimslistans, Scottie Scheffler, átti frábæra byrjun og fékk tvo fugla á fyrstu tveimur holunum. Honum tókst hins vegar ekki að fylgja því eftir en spilaði hinar holurnar af góðum stöðugleika, allar á pari nema þá 15. þar sem hann fékk skolla. Scheffler situr einnig í sameiginlega 6. sætinu, tveimur höggum undir pari. Eitthvað allt annað en sá sem var með honum í holli, Robert MacIntyre, áttundi efsti kylfingur heimslistans. Hann fór hringinn á heilum átta höggum yfir pari. Hér fyrir neðan má finna topp tíu listann eftir fyrsta dag Masters. Stöðutöfluna í heild sinni má finna hér. Topp tíu eftir fyrsta dag Masters: 1. Sam Burns (-5) 1. Rory McIlroy (-5) T3. Kurt Kitayama (-3) T3. Jason Day (-3) T3. Patrick Reed (-3) T6. Shane Lowry (-2) T6. Xander Schauffele (-2) T6. Justin Rose (-2) T6. Scottie Scheffler (-2) T10. Haotong Li (-1) T10. Nick Taylor (-1) T10. Tommy Fleetwood (-1) T10. Brian Campbell (-1) T10. Aaron Rai (-1) T10. Jacob Bridgeman (-1) T10. Gary Woodland (-1) Masters-mótið er í beinni útsendingu á Sýn Sport alla helgina. Útsending frá öðrum keppnisdegi mótsins hefst klukkan 17:00 á morgun. Masters-mótið Golf Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira
Topp tíu eftir fyrsta dag Masters: 1. Sam Burns (-5) 1. Rory McIlroy (-5) T3. Kurt Kitayama (-3) T3. Jason Day (-3) T3. Patrick Reed (-3) T6. Shane Lowry (-2) T6. Xander Schauffele (-2) T6. Justin Rose (-2) T6. Scottie Scheffler (-2) T10. Haotong Li (-1) T10. Nick Taylor (-1) T10. Tommy Fleetwood (-1) T10. Brian Campbell (-1) T10. Aaron Rai (-1) T10. Jacob Bridgeman (-1) T10. Gary Woodland (-1)
Masters-mótið Golf Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira