Goðsagnir lögðu Tiger línurnar: „Hann á ekki að keyra“ Aron Guðmundsson skrifar 10. apríl 2026 16:47 Tiger Woods hefur verið í betri málum. Goðsagnir í golfheiminum gáfu sjálfri goðsögninni Tiger Woods heilræði á tímum þar sem hann er að ganga í gegnum erfiðleika. Þrefaldur sigurvegari á Mastersmótinu ráðlagði Tiger að hætta að keyra.
Mastersmótið, fyrsta risamót ársins í golfheiminum, hófst á Augusta National vellinum í Georgíu í gær. Þar er ekki að finna fimmfalda Masters meistarann Tiger Woods sem er í meðferð í kjölfar handtöku fyrir akstur undir áhrifum í Flórída undir lok síðasta mánaðar. Hinn fimmtugi Woods neitaði sök í ákæru um ölvunarakstur með eignatjóni og fyrir að neita að gangast undir löglegt próf. Gary Player, þrefaldur sigurvegari á Mastersmótinu, finnur til með Tiger sem hefur mátt þola miklar raunir undanfarin ár. Fjögur bílslys, ótal aðgerðir og meiðslasaga hefur sett strik í reikninginn á seinni helmingi þessa sigursæla kylfings. Player tekur það fram að hann hefur samúð með Tiger og sársaukanum sem hann finnur dags daglega sökum meiðsla- og slysasögu sinnar. Hann eigi hins vegar ekki að að keyra bíl. „Ég held hann sé búinn að fara í einhverjar tuttugu aðgerðir á baki og fótum, margar aðgerðir og finnur fyrir sársauka,“ sagði Player í viðtali á Mastersmótinu. „Lít ég niður á hann fyrir að taka lyf til þess að sofa betur? Alls ekki. En ég tel að hann ætti ekki að keyra bíl. Þegar að þú ert undir áhrifum svona lyfja er hættulegt að keyra. Sömuleiðis er það hættulegt að vera í símanum á meðan að þú ert að keyra.“ Tiger eigi að fá sér einkabílstjóra. „Viðbrögð mín eru álíka góð og þegar að ég var tvítugur,“ sagði hinn níutíu ára gamli Player. „En ég keyri ekki lengur. Ég er með einkabílstjóra.“ Sir Jack Nicklaus, sem er ásamt Sir Nick Faldo og Tiger Woods einn þeirra þriggja kylfinga sem hefur varið titil sinn á Mastersmótinu, tók í svipaðan streng og Player. „Gerðu það sem þú þarft að gera til þess að koma til baka. Golfíþróttin þarf hann, við myndum elska það að fá hann aftur.“ Bein útsending frá öðrum keppnisdegi Mastersmótsins í golfi hefst klukkan fimm á Sýn Sport í dag. Rory McIlroy, ríkjandi Masters meistari er í forystunni eftir fyrsta keppnisdaginn en deilir fyrsta sætinu með Sam Burns. Báðir eru þeir á fimm höggum undir pari eftir fyrsta keppnisdag.
Golf Masters-mótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira