Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. apríl 2026 10:12 Íris Helga opnaði á sína hlið málanna í hlaðvarpi á vegum Brotkasts um árið. Skjáskot Dómari hafnaði kröfu um gæsluvarðhald yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur, meintum eltihrelli, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Farið var fram á fjögurra daga varðhald.
Þetta herma heimildir fréttastofu en fátítt er að kröfu um gæsluvarðhald sé hafnað á þessu stigi mála. Um fyrstu varðhaldskröfu var að ræða. Í gær var greint frá því að birst hefði dánartilkynning Sölva Guðmundarsonar þrátt fyrir að hann væri svo sannarlega lifandi. Í færslu á samfélagsmiðlum sagði hann Írisi Helgu Jónatansdóttur bera ábyrgð á uppátækinu. „Kæru ættingjar og vinir, þið sem hafið verið að senda skilaboð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprelllifandi,“ segir Sölvi í færslunni en hann og Íris voru að sögn Sölva í árslöngu sambandi sem lauk í byrjun mars 2024. Áreitið hafi byrjað nokkrum vikum eftir sambandsslit þeirra og síðan þá hafi hún meðal annars sent skilaboð á dóttur Sölva og reynt að skera dekkin á bílnum hans. Hann leitaði fyrst til lögreglu vegna hennar árið 2024 en sjö menn hafa kært hana fyrir umsáturseinelti. Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, sagði í samtali við fréttastofu Vísis í gær að umsáturseineltismál væru alltof algeng hér á landi og erfitt væri að bregðast við þeim. „Það hefur frekar verið þannig á Íslandi að það hefur verið þótt íþyngjandi fyrir gerendur að sæta nálgunarbanni frekar en að þetta sé nýtt til að tryggja öryggi þolenda. Það eru alltof fá dæmi um að þetta sé nýtt. Það þarf að líta á þessi mál þannig að þetta séu íþyngjandi brot sem er verið að beita þolendur, oft yfir langan tíma. Þetta grefur undan öryggi þolenda og hefur áhrif á þeirra persónulega líf.“ Birting dánartilkynningar sé enn eitt dæmið um hve langt eltihrellar eru tilbúnir að ganga til að ná athygli þolenda. Hún sagði jafnframt að hún þekkti ekki mál sem er sambærilegt þessu en að það væru alltaf að koma nýjar birtingarmyndir ofbeldis og að þetta væri eitt dæmi um það. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort úrskurðurinn verði kærður til Landsréttar samkvæmt tilkynningu frá Margréti Kristínu Pálsdóttur, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Fréttin var uppfærð klukkan 11:35.
Lögreglumál Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Tengdar fréttir „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Teymisstýra Bjarkarhlíðar segir birtingu falskrar dánartilkynningar vera enn ein birtingarmynd þess hve langt elltihrellar eru tilbúnir að ganga til að ná athygli þolenda sinna. Lögreglan mun fara fram á gæsluvarðhald yfir konu sem var handtekin vegna málsins. 10. apríl 2026 19:05 Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Svo virðist sem dánartilkynning hafi birst í Morgunblaðinu í morgun um mann sem er sprelllifandi. Maðurinn, Sölvi Guðmundarson, ber fregnirnar af sér í færslu á Facebook, í skilaboðum til ættingja og vina. 10. apríl 2026 08:34 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
„Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Teymisstýra Bjarkarhlíðar segir birtingu falskrar dánartilkynningar vera enn ein birtingarmynd þess hve langt elltihrellar eru tilbúnir að ganga til að ná athygli þolenda sinna. Lögreglan mun fara fram á gæsluvarðhald yfir konu sem var handtekin vegna málsins. 10. apríl 2026 19:05
Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Svo virðist sem dánartilkynning hafi birst í Morgunblaðinu í morgun um mann sem er sprelllifandi. Maðurinn, Sölvi Guðmundarson, ber fregnirnar af sér í færslu á Facebook, í skilaboðum til ættingja og vina. 10. apríl 2026 08:34