Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. apríl 2026 09:53 Rose Dugdale var eftirlýst vegna þátttöku sinnar í loftárásum ÍRA og ýmsum öðrum glæpum sem tengdust starfsemi lýðveldishersins. Getty Á tímum átakanna á Norður-Írlandi, jafnan kölluð The Troubles, varð enska yfirstéttarkonan Rose Dugdale einn herskáasti skæruliði Írska lýðveldishersins (ÍRA). Dugdale nýtti menntun sína og breskan yfirstéttarhreim til að skipuleggja sumar af djörfustu aðgerðum ÍRA.
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið rekja prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir áfram sögu Rose Dugdale. Áður hefur verið sagt frá því hvernig hún snéri baki við forréttindum til að taka upp vopn gegn sínu eigin heimalandi en síðan tóku við hernaðarár Rose Dugdale með tilheyrandi loftárásum, listaverkaránum og fangelsun. Sjá einnig: Ótrúleg saga Rose Dugdale Rose mætti í leynilegar þjálfunarbúðir Provisional IRA í hrörlegu hjólhýsi í Donegal árið 1973 og gekk inn í raðir harðsvíraðs arms hreyfingarinnar sem hafði klofnað frá upprunalega lýðveldishernum árið 1969 vegna kerfisbundinnar kúgunar bresku stjórnarinnar á kaþólskum minnihluta Norður-Írlands. Þessi hreyfing hafnaði öllum pólitískum málamiðlunum og taldi eina rökrétta svarið vera að hrekja breska herinn burt með miskunnarlausri sprengjuherferð. Fyrsta loftárás ÍRA Í janúar árið 1974 nýtti Rose enska fágun sína til fulls. Í gervi blaðakonunnar „Stephanie Grant“ frá The Guardian tældi hún roskinn breskan þyrluflugmann til að fljúga með sig og „ljósmyndara“ sína – sem reyndust vera skæruliðar ÍRA. Í miðju flugi beindi Rose skammbyssu í hnakkann á flugmanninum og rændi þyrlunni. Markmiðið var að varpa mjólkurbrúsum stútfullum af sprengiefni á lögreglustöð í Strabane. Aðgerðin fór þó út um þúfur. Þyrlan var of þung og flugmaðurinn sýndi fádæma snarræði þegar hann sveigði framhjá skotmarkinu til að forða nærliggjandi grunnskóla frá hættu. Eigi að síður þótti atburðurinn sögulegur, enda fyrsta tilraun ÍRA til loftárásar, og andlit Rose prýddi í kjölfarið allar helstu forsíður dagblaða á Bretlandseyjum. Stærsta listaverkarán Írlandssögunnar Aðeins nokkrum mánuðum síðar, í apríl 1974 – þegar Rose var raunar orðin barnshafandi – ruddist hún ásamt vitorðsmönnum sínum inn í hefðarsetrið Russborough House. Mynd af Bridget Rose Dugdale sem lögregla dreifði árið 1980 þegar hún var grunuð um vopnasmygl.Getty Þar hafði Beit-fjölskyldan, sem auðgast hafði á demantanámum í Suður-Afríku, sankað að sér ævintýranlega verðmætu listaverkasafni. Rose leit á fjölskylduna sem táknmynd nýlendustefnu og hikaði ekki við að beita áttræðan húsbóndann, Sir Alfred Beit, grófu ofbeldi. Hún valdi nákvæmlega þau listaverk sem hún vissi að væru dýrmætust, þar á meðal verk eftir Rubens, Goya og sjálfan Vermeer. Heildarverðmæti ránsins nam um átta milljónum punda. Aðgerðin endaði þó með handtöku Rose og fæddi hún son sinn, Rory, á bak við lás og slá. Kex-varpan og sprengjuherferðir Árin í fangelsi slökktu ekki byltingareldinn. Eftir að hún losnaði árið 1980 sneri Rose sér að vopnaframleiðslu ásamt sprengjusérfræðingnum Jim Monaghan. Hún fann upp nýja tegund af kveikiþræði úr plastsprengiefninu Semtex, tækni sem síðar var notuð í mannskæðustu sprengjuárásum ÍRA í London. Plakat þar sem Rose var eftirlýst. Furðulegasta uppfinningin var vopn sem kallað var „The Biscuit Launcher“. Til að koma í veg fyrir að heimatilbúnar flugskeytavörpur slösuðu skotmanninn vegna bakslags, uppgötvuðu þau að hægt var að troða venjulegu Digestive-kexi í afturenda rörsins. Kexmulningurinn gleypti þrýstinginn fullkomlega. Þetta fáránlega en banvæna vopn var notað til að draga fjölda manns til dauða á Norður-Írlandi. Vegferð Rose Dugdale er sláandi vitnisburður um það hvernig pólitísk sannfæring getur afmáð öll mörk. Konan sem hóf ævina á fínustu teboðum í Kensington endaði í dýpstu skotgröfum ÍRA og lagði sitt af mörkum til eins blóðugasta tímabils í samtímasögu Evrópu. Á síðari hluta ævinnar notaði hún þó áhrif sín innan lýðveldishreyfingarinnar á Norður-Írlandi til að styðja við friðarferlið sem kennt er við föstudaginn langa árið 1998. Jarðarför Rose Dugdale árið 2024 þar sem kista hennar var borin langa leið í Dublin. Getty/Brian lawless Rose lést vorið 2024, en hlusta má á ævintýranlega og miklu ítarlegri sögu hennar og átakanna á Norður-Írlandi í tveimur þáttum Skuggavaldsins sem nú eru báðir aðgengilegir í hlaðvarpsveitum.
Norður-Írland Skuggavaldið Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið „Ég vil vera bestur í öllu“ Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Sjá meira