Innherji

Alls staðar verið að minnka áhættusækni og dirfsku hjá stjórn­endum fé­laga

Hörður Ægisson skrifar
Finnur Reyr Stefánsson fer fyrir fjárfestingafélaginu Snæból, öðrum stærsta hluthafa Sjóvá, og Davíð Rúdólfsson er framkvæmdastjóri Gildis, einn stærsti lífeyrissjóður landsins og þriðji umsvifamesti hluthafinn í tryggingafélaginu.
Finnur Reyr Stefánsson fer fyrir fjárfestingafélaginu Snæból, öðrum stærsta hluthafa Sjóvá, og Davíð Rúdólfsson er framkvæmdastjóri Gildis, einn stærsti lífeyrissjóður landsins og þriðji umsvifamesti hluthafinn í tryggingafélaginu.

Einn stærsti einkafjárfestirinn í Sjóvá sagði afstöðu Gildis gegn tillögu að kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur félagsins, sem tekist var á um á nýlegum aðalfundi, vera „óskiljanlega“ og gagnrýndi að alls staðar sé verið að „minnka áhættusækni og dirfsku og draga tennurnar úr“ þegar reynt er að umbuna stjórnendum. Að sögn framkvæmdastjóra Gildis snýr gagnrýninn að skorti á skýrleika en sjóðurinn var eini hluthafinn sem greiddi atkvæði á móti kaupréttaráætluninni eftir breytingartillögu sem barst frá LSR.


Tengdar fréttir

Gagn­rýnir um­bun stjórn­enda ef á­vöxtun „nær að skríða“ yfir á­hættu­lausa vexti

Stærsti hluthafi Haga var gagnrýninn á „umfang og útfærslu“ nýs kaupréttarkerfis smásölurisans og beindi þeirri spurningu til stjórnar félagsins á nýafstöðnum hluthafafundi af hverju hún teldi rétt að umbuna lykilstjórnendum með kaupréttum ef þeir næðu að skila ávöxtun sem væri vel undir ávöxtunarkröfu ríkisbréfa. Tillaga stjórnar Haga, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, að kaupréttarkerfi var samþykkt með nokkuð naumum meirihluta.

Reyna að nýju að koma á kaup­réttar­kerfi eftir and­stöðu frá Gildi

Eftir að hafa mætt andstöðu frá sumum lífeyrissjóðum, einkum Gildi, við kaupréttarkerfi til handa lykilstjórnendum fyrr á árinu freista stjórnir smásölurisans Haga og fasteignafélagsins Heima þess núna að nýju að koma á slíku kerfi með breytingum frá upprunalegum tillögum, meðal annars eru vextir til leiðréttingar á nýtingaverði kaupréttanna hækkaðir nokkuð. Þá mun hámarks úthlutun kauprétta til forstjóra Haga vera helmingi minni en upphaflega var áformað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×