„Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Jakob Bjarnar skrifar 15. apríl 2026 16:42 Nanna Margrét sagðist auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu, en hún spurði: Hringja engar bjöllur hjá yfirvöldum um að það kunni að vera misnotkun í gangi eða eitthvað skrýtið, þegar einn stærsti erlendi hópurinn sem sækir um háskólanám kemur frá Nígeríu? vísir/lýður valberg Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Miðflokki, segir að kostnaður vegna útlendingamála sé enn að hækka þrátt fyrir yfirlýsingar um að verið væri að taka á vandamálinu. Nanna Margrét sagði tölur sýna að einn stærsti hópurinn sem kemur til landsins til að stunda háskólanám komi frá Nígeríu en það þótti Nönnu Margréti skjóta skökku við.
Þetta sagði Nanna Margrét fyrir stundu á Alþingi í dagskrárliðnum störf þingsins: „Fangelsin eru yfirfull og innviðir almennt ráða ekki við þessa hröðu fólksfjölgun. Það hefur verið lenska að reyna að fela raunverulega stöðu. Í svari við fyrirspurn sem varaþingmaður Miðflokksins, Lárus Guðmundsson, fékk frá Útlendingastofnun kemur fram að dvalarleyfisflokkar séu 11 talsins. Í gegnum dvalarleyfi eða endurnýjun dvalarleyfis fengu á árinu 2025 samtals 13.639 einstaklingar dvalarleyfi.“ Nanna Margrét nefndi dæmi og sagði að í gegnum aðstandendaleyfi fengju 3.312 einstaklingar dvalarleyfi. Í gegnum námsmannaleyfi fengu 1.382 dvalarleyfi og þar af voru 164 frá Nígeríu, 242 frá Bandaríkjunum og 218 frá Filippseyjum. „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu, en hringja engar bjöllur hjá yfirvöldum um að það kunni að vera misnotkun í gangi eða eitthvað skrýtið, þegar einn stærsti erlendi hópurinn sem sækir um háskólanám kemur frá Nígeríu?“ Þingmaðurinn bætti við að kannski ætti ekki að kalla það misnotkun þegar stjórnvöld stuðla að aðgerðum þar sem opnað er fyrir að íslenskir skattgreiðendur greiði háskólanám fyrir þá sem hafa ekkert lagt til samneyslunnar. „Og byggja kerfið þannig upp að það sé hagur til dæmis Háskóla Íslands að laða sem flesta að í gott sem frítt háskólanám. Þegar stjórnvöld bjóða fullt af réttindum án skyldu er ekki hægt að álasa fólki frá fátækari löndum fyrir að bjarga sér. En í þessu tilfelli er það í boði skattgreiðenda á Íslandi,“ sagði Nanna Margrét.
Alþingi Miðflokkurinn Innflytjendamál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira