„Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Smári Jökull Jónsson skrifar 15. apríl 2026 20:01 Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra heldur hér ræðu sína í morgun og í bakgrunni má sjá Mjöll Matthíasdóttur formann Félags grunnskólakennara. Vísir/Vilhelm Kennarar eru æfir eftir ræðu barna- og menntamálaráðherra á þingi Kennarasambandsins í morgun. Formaður sambandsins segir það vonbrigði að ríkisstjórnin ætli að halda áfram að kasta hlutum til kennara sem gangi þvert gegn aðalnámskrá.
Ráðherra kom víða við í ræðu sinni á þingi Kennarasambandsins í morgun en eitt málefni vakti þó meiri viðbrögð en önnur. „Að við notum tölustafi í einkunnagjöf eins og tíðkast í framhaldsskólum, en ekki bókstafi eða önnur form sem getur verið erfitt að skilja,“ sagði Inga í ræðu sinni. Orðin vöktu athygli og mátti heyra hlátur og andköf hjá gestum þingsins. Vonbrigði að ríkisstjórnin kasti hlutum til kennara sem ganga þvert gegn aðalnámskrá Formaður Kennarasambands Íslands sagðist fyrst hafa heyrt af þessum áformum Ingu í ræðu hennar. „Það er auðvitað verulega mikil vonbrigði að við búum í þeim veruleika að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætli að halda áfram að kasta til okkar hlutum sem ganga þvert gegn ríkjandi aðalnámskrá,“ en samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla skal gefa einkunnir í bókstöfum við lok 10. bekkjar. Magnús Þór á þinginu í morgun.Vísir/Vilhelm Í ræðu sinni sagði Inga Sæland að mikilvægt væri að námsmat væri skýrt fyrir nemenur og foreldra og vísaði í skoðanakönnun sem gerð var á meðal almennings um viðhorf til námsmats í grunnskólum. Það gaf Magnús lítið fyrir. „Þetta getur ekki verið neinum til gæfu að vísa í samtöl við fólk utan skólakerfisins eða skoðanakannanir eða einstök bréf sem stjórnmálamenn fá til að lyfta upp popúlískri skoðun sem rímar ekki við þá fagmennsku sem þarf að ríkja í þessum ákvörðunum. Þannig að já, ég er dálítið reiður.“ „Fáránlegt að embættismaður tali svona án þess að tala við okkur“ Þá kom Inga sömuleiðis inn á það í ræðu sinni að samtal þyrfti að eiga sér stað við sveitarfélög um hámarksfjölda nemenda í hverjum bekk, að auka þyrfti stuðning fyrir börn með greiningar og talaði um stefnuna skóla án aðgreiningar. Hvernig fannst þér undirtektirnar við ræðu þinni? „Mér fannst þær bara mjög góðar, ég held að það hafi bara allir klappað fyrir mér.“ En hvað fannst kennurum um ræðu ráðherra? „Froða, fráleitt. Bara fáránlegt að háttsettur embættismaður leyfi sér að tala svona án þess að vera búin að kynna sér málið, tala við fólkið eða tala við okkur,“ sagði Guðríður Jónsdóttir kennari við Grunnskóla Vestmannaeyjum sem sagðist þó vera sammála að nota ætti frekar tölueinkunnir. Guðríður Jónsdóttir grunnskólakennari við Grunnskóla Vestmannaeyja.Vísir/Sigurjón „En við vinnum eftir plaggi sem heitir Aðalnámskrá grunnskóla og við eigum að útskrifa nemendur úr 10. bekk með bókstöfum. Hitt er bara okkur í sjálfsvald sett, hvort við notum bókstafi eða ekki.“ „Ég og fleiri löbbuðum út“ Ragnar Þór Pétursson, kennari í Norðlingaskóla, segir Ingu ekki geta lært, hún skelli fram hlutum og þó hún sé leiðrétt þá grafi hún sig dýpra niður. „Dálítið eins og að vera á bíl og vélin er alveg að bila og hún er alltaf að stinga upp á því að við skiptum um áklæði á sætunum eða hnapp á útvarpinu. Eitthvað svona rugl sem skiptir engu máli. Hvort einkunnir séu í lit eða bókstöfum, sem kom frá ráðuneytinu til að byrja með,“ sem fullyrðir að Inga skilji ekki sjálf það sem hún er að tala um. Ragnar Þór Pétursson er kennari við Norðlingaskóla í ReykjavíkVísir/Sigurjón „Hún varð sér til skammar hér í morgun og ég og fleiri löbbuðum út,“ bætir Ragnar Þór við. „Ég bjóst við að heyra meira af jákvæðri hvatningu“ Kristín Björnsdóttir, kennari í Ingunnarskóla, segir ráðherra tala á skjön við það margt sem komi fram í Aðalnámskrá grunnskóla sem stýri starfi skólanna. „Það eru ákveðin formerki, ákveðin markmið, ákveðinn rammi og reglur sem þarf að vinna eftir.“ Kristín Björnsdóttir kennari við Ingunnarskóla í Reykjavík.Vísir Orð ráðherra hafi komið henni á óvart. „Ég bjóst við að heyra meira af jákvæðri hvatningu og að fagna kennarastarfinu í stað þess að tilkynna breytingar á menntakerfinu.“ Elísabet Soffía Bender er formaður Félags nýliða í kennslu og hún saknaði þess að ráðherra hafi ekki rætt meira um þann hóp. Elísabet Soffía Bender er kennari við Norðlingaskóla í Hafnarfirði.Vísir/Sigurjón „Við erum grunnurinn að skóli og menntun haldi áfram, að við fáum að láta ljós okkar skína. Það hefur ekki komið neinn rökstuðningur um það sem hún er að tala um, hún er svolítið að tala út í loftið en ætti frekar að koma með rökstuðning af hverju.“ „Við erum sár, við erum reið og finnst ekki hlustað á okkur. Það er það sem ég heyrði og hlegið að vitleysunni sem er í gangi.“
Grunnskólar Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira