Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar 18. apríl 2026 09:00 Þegar áhrifavaldurinn Natalie Heller Mills, sem heldur úti Instagramreikningnum Yesteryear Farms, vaknar skyndilega árið 1855 er henni illa brugðið. Natalie hefur síðustu árin einbeitt sér að því að dreyfa góðum kristnum gildum um heiminn með Instagramreikningnum sínum og sínir þar börnin sín fimm og eiginmann ásamt með sjálfri sér í daglega lífinu þeirra á sveitabænum sem þau reka alveg eins og í gamla daga. Þau eru vissuelga með starfsfólk sem hjálpar þeim að ala upp börnin og sjá um sveitabæinn og alla helstu nútímatækni vel falda frá áhorfendum en innan handar, en þess utan er allt eins og í gamla daga. Allt. Svo hvers vegna er Natalie ósátt þegar hún hefur tímaflust aftur um tæp hundrað ár til tímanna sem hún ídolíserar svo? Nú auðvitað vegna þess að það að búa á sveitabæ í Idaho árið 1855 var hryllilega erfitt. Sem betur fer er Natalie ekki alvöru manneskja, hún er aðalpersónan í glænýju skáldsögunni Yesteryear eftir Caro Claire Burke um „tradwife“ áhrifavald sem vill gera Ameríku frábæra á ný og að allir lifi við forn gildi, og fær svo akkúrat það sem hún biður um og áttar sig á að það var kannski ekki allt sem sýndist. En Natalie er byggð á raunverulegum áhrifavöldum og við Íslendingar eigum einn slíkan líka, Snorra okkar Másson. Nú skulum við ímynda okkur saman að Snorri Másson vakni árið 1899 á Íslandi. Hann reynir að teygja úr sér en rekur skankana fljótt í enda rekkjunnar sem er rúmlega 160 cm á lengd. Hann ákveður að snúa sér frekar á hina hliðina en þá sparkar hann óvart í hálfstálpaðan son sinn sem deilir með honum rekkju. Hvers vegna er strákurinn uppí? hugsar Snorri með sér, en þá er hann bitinn í mjóbakið. Á. Hver andskotinn? Hann rís upp við dogg og rekur höfuðið í loftið. Meira á. Hann stígur út á moldargólfið sem er kalt undir ullarsokkakklæddum fótum hans. Aftur þessi kláði. Fjandinn, er þetta... fló? Hann finnur kláðann í hársverðinum líka. Lús! Sá rammíslenski fantur. Hann þarf að drífa sig út í apótek og kaupa lúsasjampó. Eða nei hann getur bara pantað það á netinu. En hvar er síminn hans? Og hvar er loftljósið? Eða lampi? Eða bara eitthvað? Það er hálfdimmt í herberginu og skyndilega rennur upp fyrir honum ljós. „Ó shit,“ hugsar hann á sínu ástkæra ilhýra. Ég hef tímaflust aftur til fortíðar á krafti minna forneskjulegu skoðana einum saman! Hann veit ekki hvort hann á að fagna eða örvænta. Þetta er nú einu sinni besti tími veraldarinnar, er það ekki? Tími alvöru hetja eins og Bjarts í Sumarhúsum og Egils Skallagrímssonar, eða kannski Halldórs Laxness? Hvaða ár er eiginlega? Snorri sprettur á fætur og hrasar um illa lyktandi hund sem ýlfrar undan honum, en hann má engan tíma missa. Hann þarf að komast til botns í hvað er í gangi. Hann hleypur á skítugu föðurlandinu einu saman út í haga og öskrar af hræðslu. Þögnin er geigvænleg, hann heyrir ekkert nema niðinn í bæjarlæknum. Loftið er kalt, en ekki svo mjög, dapurlegur grasvöxturinn hefur greinilega verið margsleginn svo mold gægist upp úr hér og hvar. Kona haltrar út í dyr og gægist út. „Snorri minn, hvað gengur á?“ spyr hún og Snorri lítur við. Konan er lágvaxin, hokin og hálftannlaus, þunnt hárið fléttað og vafið um höfuðið. Hún er með móbrúnt sjal um hoknar axlirnar og djúpar fátæktarhrukkur á andliti. Hún lítur út fyrir að vera í það minnsta 50 ára. Hann veit að þetta er konan hans. Finnur það á sér. „Ég er með morgunskattinn tilbúinn,“ segir konan og Snorri hopar aftur inn. Um leið og hann stígur inn fyrir dyrnar, sem hann þarf að beygja sig rækilega undir, finnur hann skítalyktina. Svo heyrir hann jarmið. „What hvað er þessi kind að gera inni?“ stynur hann upp. „Mee,“ segir kindin ákveðin. Snorri áttar sig á að þetta er líka hennar heimili. „Fokk,“ stynur hann upp. „Hvað ertu að tuldra drengur?“ heyrir hann kvakað úr horni. Þar húkir kerling samanhnýtt af gigt yfir aski með pilsin upp um sig. Snorri kastar upp í munninn á sér og sest svo til borðs. Þetta er allt í lagi. Þetta er bara þjóðlegt. Hann verkjar í þumalin yfir að hafa ekkert skrollað í marga klukkutíma. Ætli hann hafi fengið mörg email? Er búið að setja upp nýtt podcast með leiðbeiningum um hvernig eigi að vera popúlisti? Hverju er hann að missa af? Konan leggur á borð fyrir hann, kaffið er lapþunnt og ógeðslegt, skyrið er úldið. Börnin tíu raða matnum í sig eins og þeim sé borgað fyrir, og Snorri veit að þetta er eina máltíðin fram á kvöld. Þetta úldna skyr. Eða er það kannski bara súrt? Var það ekki eitthvað? Súrmatur? Hann klórar sér meira á bakinu, finnur upphleypt flóabitin mynda hóla og hæðir á húðinni. „Eigiði ekki eitthvað svona body lotion?“ spyr hann stundar hátt. Fjölskyldan horfir á hann eins og geimveru. Fjandinn, þau skilja hann ekki. „Hérna, krem?“ spyr hann á einfaldari íslensku. „Það er búið að bera júgursmyrsl á kúnna,“ svarar konan hans og smjattar á skyrinu. Andardráttur hennar lyktar eins og rotnandi tannhold og mjólk. „Svo er keytan á sínum stað.“ „Er þetta eitthvað djók?“ Spyr Snorri og lítur aftur ofan í diskinn sinn. Maginn er í hnút. „Hvað ertu að gaspra drengur?“ spyr gamla konan aftur. Snorri horfir framan í hennar þúsund ára andlit og áttar sig á því að þetta er móðir hans, rétt sextug konan. Hann hryllir sig. Hálfstálpaður piltur stendur upp „Hvers vegna ertu ekki farinn á stað út að slá? Stinningskaldinn er sérlega slæmur þessi skerplulok,“ segir hann og skyrpir svartri slepju út úr sér og á gólfið. Snorri finnur að þetta er lífið hans núna. Þetta er raunveruleikinn. Þessi ískaldi, skítalyktandi moldarkofi úti í rassgati í sambýli við þetta illa tennta fólk. Með þessu úldna skyri. Hann stendur upp frá borðum og stígur út fyrir á ný. „Það eru þó allavega ekkert helvítis vók lið að reyna að flagga regnbogafánum hérna,“ hugsar hann með sjálfum sér áður en hann hoppar af stað að drekkja sér í bæjarlæknum. Höfundur er bókmenntafræðingur og rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun