„Vildi að pabbi væri hérna“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 19. apríl 2026 21:37 Frank Aron Booker var frábær fyrir Val í kvöld. Anton Brink/Vísir Valur hafði betur gegn Keflavík í oddaleik liðanna í N1 höllinni á Hlíðarenda, 90-74, í kvöld og tryggði sér um leið síðasta sætið í undanúrslitum Bónus deild karla. Þar mæta Valsmenn Grindavík. Frank Aron Booker ræddi við Andra Má Eggertsson eftir leik. „
Ég er bara svo ánægður með það hvernig við spiluðum,“ sagði Frank Aron Booker sem átti stórkostlegan leik fyrir Val í kvöld og endaði með 29 stig. „Við gátum alveg frákastað betur en við náðum að koma saman og við hittum úr skotum loksins og náðum að verjast Remy og Egor og þetta var bara algjör barátta, takk fyrir mig Keflavík.“ Leikurinn var mjög jafn lengst af en Valsmenn náðu að berja aðeins frá sér í fjórða leikhluta. „Já, mér fannst þeir vera miklu aggressívari í sóknarfráköstunum og þeir náðu helvíti mörgum boltum en við náðum að stíga aðeins betur út og ná þessum boltum.“ Frank Aron átti möguleg sinn besta leik á ferlinum en hann skoraði 29 stig í kvöld og var gjörsamlega frábær fyrir Val. „Það getur alveg verið en ef ég er hreinskilinn er mér drullusama hvað ég skora mikið. Mig langar bara að sjá aðra gera það gott og ég reyni mitt besta. Það eina sem skiptir máli er að við vinnum.“ Hann fann fyrir ákveðinni ábyrgð í leiknum í kvöld. „Mér leið bara eins og ég tæki það sem þeir gáfu mér. Skotin sem að ég fékk opin, ég tók þau bara og ef ég sá galopið sniðskot þá tók ég það. Ég er bara hérna að skemmta mér og ég vildi að pabbi væri hérna en svona er þetta en hann horfir niður og er mjög ánægður.“ Frank Aron missti föður sinn fyrr á tímabilinu og hefur þetta verið erfitt tímabil fyrir hann persónulega. „Þetta er búið að vera drulluerfitt og ég get alveg verið smá hreinskilinn að ég er ennþá smá dauður að innan ennþá en þetta er partur af lífinu og ég þarf bara einhvern veginn að lifa með þessu en hann veit að ég elska hann mjög mikið og hann elskaði mig út af lífinu eins og þið sáuð fyrir tveim árum síðan.“ „Ég veit að hann er algjör Valsari og hann er mjög ánægður núna.“ Frábær sería gegn Keflavík á enda en næst eru það deildarmeistarar Grindavíkur. „Mér líður eins og þessi sería sé búin að gefa okkur smá töffaraskap til þess að koma inn í næstu seríu sem verður á móti Grindavík sem er hörkulið.“ „Takk fyrir mig Keflavík, þetta var æðisleg sería!“ sagði Frank Aron Booker.
Valur Körfubolti Bónus-deild karla Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Sjá meira