Launahækkun Höllu illskiljanleg Bjarki Sigurðsson skrifar 20. apríl 2026 11:43 Sólveig Anna á erfitt með að skilja launahækkun Höllu Gunnarsdóttur. Vísir/Vilhelm Formaður Eflingar er gagnrýninn á launahækkun sem stjórn VR veitti formanni félagsins fyrir helgi. Það skjóti skökku við að góð laun formannsins hækki um tólf prósent þegar langtímakjarasamningar eru í mikilli hættu á að falla úr gildi.
Stjórn VR samþykkti í síðustu viku að laun Höllu Gunnarsdóttur, formanns félagsins, myndu hækka um tæpar tvö hundruð þúsund krónur. Í minnisblaði um launakjör formanns sem DV birtir kemur fram að unnið hafi verið að auknu gagnsæi í launum formanns. Í stað þess að hann þiggi greiðslur fyrir önnur störf tengd formennskunni, svo sem varaformennsku í ASÍ, fari þær greiðslur beint til VR og í staðinn greiði félagið formanninum fasta upphæð í hverjum mánuði. Ákveðið var að sú upphæð yrði ein milljón og níu hundruð og þrettán þúsund krónur, hundrað og níutíu þúsund krónum meira en launin voru fyrir. Kjarasamningar í lausu lofti Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ræddi málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Auðvitað er stærsta atriðið og það svona, gagnrýniverðast af þessu að á tímum eins og þeim sem við lifum núna, í kjölfar þess að íslensk verkalýðshreyfing gerir margumrædda langtímakjarasamninga á almennum vinnumarkaði vorið 2024, kjarasamningar sem nú eru í mikilli hættu á því að falla úr gildi í haust vegna þess að allt bendir til þess með skýrum hætti að forsenduákvæðin sem við settum inn í samningana munu ekki standast. Að forysta íslenskrar verkalýðshreyfingar, á sama tíma og hér er verið að hefja samtal við stjórnvöld, mögulega hefja samtal við Samtök atvinnulífsins, eiga samskipti við félagsfólk um hvað fólk vilji, sé að færa sjálfri sér að lágmarki tólf prósent hækkun ofan á laun sem að þegar eru afskaplega góð og mögulega miklu, miklu hærri hækkun,“ segir Sólveig. Formenn þurfi að jarðtengja sig Hækkunin rýri traust félagsmanna til formannsins. Formenn stéttarfélaga séu of oft ekki jarðtengdir. „Fólk stígur fram og telur sig þess megnugt að taka hér þátt í því að gera stóra miðlæga kjarasamninga sem auðvitað móta launakjör margra hér í þessu landi. Telur sig þess megnugt að hafa bara einhvern veginn skoðanir á öllu og telur sig megnugt, eins og mér finnst formaður VR oft gera, að leggja bara línurnar fyrir alla hagstjórn í landinu eins og ekkert sé. En er svo sjálft ekki tilbúið til þess að fylgja í það minnsta einhverjum lágmarksskilyrðum,“ segir Sólveig.
Stéttarfélög Kjaramál Bítið Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira