Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Árni Sæberg skrifar 21. apríl 2026 11:32 Margrét, til vinstri, þarf að láta sér það lynda að Ingibjörg, til hægri, dæmi í máli hennar. Vísir Ingibjörg Þorsteinsdóttir landsréttardómari þarf ekki að víkja sæti í máli Margrétar Friðriksdóttur á hendur Icelandair vegna atviks árið 2022, þegar Margréti var vísað úr flugvél flugfélagsins. Margrét krefst tuga milljóna króna vegna ætlaðs fjártjóns vegna atviksins en Icelandair var sýknað af öllum kröfum hennar í héraði. Krafa Margrétar um að Ingibjörg viki sæti tengist umtöluðu meiðyrðamáli sem höfðað hefur verið á hendur Margréti.
Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar, sem kveðinn var upp þann 16. apríl og birtur í gær. Þar hefur nafn Margrétar verið afmáð en ljóst er af málsatvikum að um hana er að ræða. Þann 14. apríl í fyrra var Icelandair sýknað af kröfum Margrétar um bætur upp á 24 milljónir króna vegna brottvikningar hennar úr flugvél félagsins. Hún reisti kröfur sínar meðal annars á því að hún væri viss um að Netflix hefði keypt heimildarmynd sem hún ætlaði að framleiða í ferðinni á fúlgur fjár. Héraðsdómur féllst ekki á kröfu Margrétar um tjónið vegna eyðilagðrar heimildarmyndar þar sem krafan væri einungis byggð á staðhæfingum hennar. Dómurinn taldi hana ekki hafa sýnt fram á raunverulegt tjón. Margrét áfrýjaði dóminum til Landsréttar. Lýsti alla dómara réttarins vanhæfa Sá hluti málsins sem var til úrlausnar með úrskurðinum sem birtur var í gær sneri að kröfu Margrétar um að einn þriggja dómara sem höfðu fengið málinu úthlutað yrði gert að víkja sæti. Dómarinn sem um ræðir er Ingibjörg Þorsteinsdóttir, sem var þar til nýlega dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur. Krafa Margrétar sneri að ákvörðun Ingibjargar, þegar hún var dómstjóri, um að lýsa alla dómara réttarins vænhæfa til að dæma í máli ákæruvaldsins á hendur Margréti, sem varðar meint meiðyrði hennar í garð Barböru Björnsdóttur, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Inn í málið blandast auk Barböru samdómari hennar við réttinn Sigríður Hjaltested og Símon Sigvaldason, landsréttardómari og fyrrverandi dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur. Því var það mat Ingibjargar að sakarefni málsins væri þannig vaxið að draga mætti óhlutdrægni allra dómara við dómstólinn með réttu í efa. Væru aðrir dómarar við dómstólinn því einnig vanhæfir til að dæma málið á grundvelli laga um meðferð einkamála. Veldur ekki vanhæfi eitt og sér Í niðurstöðu Landréttar segir að það eitt að landsréttardómarinn hafi í embætti sínu sem dómstjóri úrskurðað um vanhæfi allra dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í öðru og óskyldu máli gagnvart Margréti, geti það ekki valdið því að dómarinn verði talinn vanhæfur til meðferðar þessa máls í skilningi laga um meðferð einkamála, enda liggi ekkert fyrir um að tengsl séu á milli þessara tveggja mála. Þá hafi ekkert komið fram um að landsréttardómarinn hafi einhver þau viðhorf til Margrétar eða sakarefnisins að hæfi hennar til að dæma málið verði með réttu dregið í efa.
Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Dómsmál Dómstólar Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Innlent Fleiri fréttir Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Sjá meira