Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt Freyja Þórisdóttir skrifar 21. apríl 2026 15:53 Jorge Mario Bergoglio fæddist ítölskum innflytjendum í Búenos Aíres höfuðborg Argentínu 17. desember 1936. Hann var kjörinn páfi kaþólsku kirkjunnar og biskup Rómar þann 13. mars árið 2013 og tók sér þá nafnið Francis. Getty Það er í dag liðið eitt ár síðan Frans páfi lést en ein af hans hinstu óskum er enn óuppfyllt. Hann óskaði þess að páfabílnum, stundum þekktum sem „the Popemobile“, yrði breytt í færanlega heilsugæslustöð fyrir börn og hann sendur til stríðshrjáðs Gasasvæðisins. Bíllinn stendur í dag óhreyfður fyrir utan ísbúð á Vesturbakkanum. „
Það var einlæg ósk hins heilaga föður að geta gert eitthvað fyrir börnin á Gasa,“ segir Anders Arborelius, kardínáli frá Svíþjóð, náinn trúnaðarvinur hins látna páfa og að þetta sé tákn vonar. Þetta kemur fram í frétt sem breski fjölmiðillinn BBC birti í dag. Gæti meðhöndlað á annan tug barna á dag Þar er einnig sagt frá því að hinn þekkti páfabíll, sem páfinn veifaði úr til þúsunda palestínskra kristinna manna í ferð sinni til Landsins helga árið 2014, hafi síðan verið til sýnis fyrir utan ísbúð í eigu kirkjunnar í Betlehem á hernumda Vesturbakkanum. „Í nóvember síðastliðnum var mér sýndur nýuppgerður bíllinn, búinn til áfallahjálpar og bólusetninga, og mér sagt að hann gæti meðhöndlað allt að 200 börn á dag. Í dag stendur hann þó enn í glerkassa á sama stað,“ skrifar Yolande Knell blaðamaður BBC. Bíllinn stendur enn óhreyfður í glerkassanum sínum.Getty Staðbundin deild alþjóðlegu kaþólsku hjálparsamtakanna Caritas sá um vinnuna við páfabílinn fyrir verkefnið „Vonarfarartækið“ og ætlaði að senda farartækið til Gasa. Í desember var það síðan sett á lista yfir 37 erlend frjáls félagasamtök sem ísraelsk yfirvöld skipuðu að hætta starfsemi. Varðandi Vonarfarartækið sagði talsmaður Caritas á staðnum við BBC að samtökin væru „í viðræðum við yfirvöld“ og að leyfi fyrir breytta páfabílnum væri í vinnslu í gegnum kirkjuna. Frans var ötull talsmaður þess að dauðarefsingar yrðu aflagðar, jók sýnileika kvenna innan kaþólsku kirkjunnar og hvatti fulltrúa hennar til að sýna hinsegin fólki virðingu.Getty Í yfirlýsingu sagði Cogat, varnarmálastofnun Ísraels sem stjórnar landamærastöðvunum til Gaza, að hún hefði séð um að tvær færanlegar heilsugæslustöðvar yrðu sendar af latneska patríarkadæminu í febrúar og væri „ekki kunnugt um neina beiðni um að koma með fleiri farartæki inn á svæðið.“ Þar var bætt við „ef formleg beiðni verði lögð fram í gegnum viðurkenndar leiðir, verði hún skoðuð í samræmi við það“. Hefur ekkert með stjórnmál að gera Tveggja ára átök á Gaza hafa veikt heilbrigðiskerfi Gaza verulega. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) er aðeins helmingur allra sjúkrahúsa starfhæfur að hluta og sérhæfð læknisþjónusta er að mestu ófáanleg. Frá því að vopnahlé tók gildi í október hefur gengið hægt að gera við skemmdar heilbrigðisstofnanir og auka lækningabirgðir og þjónustu. WHO segir að um 18.500 manns, þar af 4.000 börn, séu á biðlistum eftir flutningi á sjúkrahús, í mörgum tilfellum vegna lífsnauðsynlegrar meðferðar. Arborelius kardínáli vonast til þess að leyfi verði brátt veitt fyrir því að breytti páfabíllinn fari inn á Gaza. „Þetta er eingöngu mannúðaraðgerð, hún hefur ekkert með stjórnmál að gera,“ segir hann og bætir við að það hafi verið ósk hins látna páfa „að skapa góð samskipti milli allra þjóða, allra trúarbragða, og sérstaklega í þágu barna sem búa við mjög, mjög erfiðar aðstæður“. Blessaði fólk á torginu daginn fyrir andlátið Frans páfi, fæddur sem Jorge Mario Bergoglio, var 88 ára að aldri þegar hann lést en hann fékk heilablóðfall sem leiddi til þess að hann fór í hjartastopp. Hann hafði lengi verið heilsuveill vegna alvarlegra veikinda í lungum og hafði stuttu fyrir andlát sitt varið þrjátíu og átta dögum á spítala vegna lungnabólgu í báðum lungum. Degi fyrir andlátið eða á sjálfan páskadag blessaði hann margmennið sem saman hafði komið á Péturstorgi til að fagna upprisunni. Hann hélt ekki messu af svölunum líkt og hefð er fyrir vegna veikinda heldur gerði það Angelo Comastri kardínáli í hans stað. Kardínálar kaþólsku kirkjunnar kusu sér nýjan páfa í byrjun maí en hann er sá 267. í röðinni. Bandaríkjamaðurinn Robert Francis Prevost varð fyrir valinu og valdi sér páfanafnið Leó. Hann er fjórtándi páfinn til að kjósa sér það nafn, og gengur því undir nafninu Leó fjórtándi.
Páfagarður Andlát Frans páfa Páfakjör 2025 Tengdar fréttir Halla og Biden hittust í útför páfans Halla Tómasdóttir forseti Íslands birti í dag mynd af sér ásamt Joe Biden fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Þau eru stödd í Páfagarði og voru viðstödd útför páfans ásamt fjölda annarra þjóðarleiðtoga. 26. apríl 2025 16:49 Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök Frans páfa, sem lést í morgun 88 ára að aldri, hefur verið kunngjörð en hann fékk heilablóðfall sem leiddi til þess að hann fór í hjartastopp. 21. apríl 2025 21:28 Tugir þúsunda kveðja páfann fyrir útförina Lokaundirbúningur fyrir útför Frans páfa mun fara fram í Páfagarði í dag. Almenningur hefur til klukkan 20 í dag, að staðartíma, til að kveðja páfann í Péturskirkjunni. Útförin er svo á morgun. Fjöldi erlendra ráðamanna ferðast í dag og á morgun til að vera viðstaddir útförina. 25. apríl 2025 06:54 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Halla og Biden hittust í útför páfans Halla Tómasdóttir forseti Íslands birti í dag mynd af sér ásamt Joe Biden fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Þau eru stödd í Páfagarði og voru viðstödd útför páfans ásamt fjölda annarra þjóðarleiðtoga. 26. apríl 2025 16:49
Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök Frans páfa, sem lést í morgun 88 ára að aldri, hefur verið kunngjörð en hann fékk heilablóðfall sem leiddi til þess að hann fór í hjartastopp. 21. apríl 2025 21:28
Tugir þúsunda kveðja páfann fyrir útförina Lokaundirbúningur fyrir útför Frans páfa mun fara fram í Páfagarði í dag. Almenningur hefur til klukkan 20 í dag, að staðartíma, til að kveðja páfann í Péturskirkjunni. Útförin er svo á morgun. Fjöldi erlendra ráðamanna ferðast í dag og á morgun til að vera viðstaddir útförina. 25. apríl 2025 06:54