Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Kjartan Kjartansson skrifar 22. apríl 2026 13:52 Sigrún Árnadóttir hefur stýrt Félagsbústöðum frá 2019. Hún stýrði áður Rauða krossinum og var bæjarstjóri í Sandgerði. Vísir Sigrún Árnadóttir hefur sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða og tekur uppsögnin gildi í sumar. Hún segist ganga sátt frá borði enda að komast á aldur.
Stjórn Félagsbústaða barst uppsagnarbréf Sigrúnar 2. apríl. Henni var þakkað metnaðarfullt og óeigingjarnt starf í þágu félagsins undanfarin ár í bókun stjórnarinnar á fundi á mánudag. Sigrún segir að hún hætti störfum í sumar en dagsetning hafi ekki verið endanlega ákveðin. Hún sé að verða 66 ára gömul og hafi verið í stjórnunarstörfum frá því að hún var 32 ára. Nú sé kominn tími til að snúa sér að öðrum málum. „Ég hætti bara mjög sátt við allt og allt,“ segir hún í samtali við Vísi. Vantraust og áhættugreining Sigrún hefur starfað í tæp átta ár sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða. Nokkuð róstursamt hefur verið hjá stofnuninni síðasta árið en allt almennt starfsfólk á skrifstofu hennar skrifaði undir vantraustsyfirlýsingu á Sigrún í mars í fyrra. Stjórn Félagsbústaða brást við með því að fá mannauðsfyrirtæki til þess að gera svonefnda áhættugreiningu á vinnustaðnum. Niðurstaða ráðgjafanna var að vantraust á vinnustaðnum væri alvarlegt. Þrátt fyrir það ákvað stjórnin að halda Sigrúnu sem framkvæmdastjóra. Sameyki, stéttarfélag starfsfólksins, lýsti áhyggjum af stöðu mannauðsmála í vetur. Í bréfi sem formaður þess skrifaði stjórn Félagsbústaða kom meðal annars fram að fimmtán starfsmönnum af 28 sem voru fastráðnir árið 2024 væru nú hættir. Það var rúmur helmingur starfsfólks. Í ársskýrslu Félagsbústaða fyrir árið 2025 kom fram að starfsmannavelta hefði numið 42 prósentum í fyrra en hún var sautján prósent árið 2024. Þá hafi fjöldi veikindadaga starfsmanna nærri því tvöfaldast á milli ára.
Húsnæðismál Reykjavík Borgarstjórn Tengdar fréttir Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Meirihlutinn í borgarstjórn ákvað í gær að styrkja Félagsbústaði um 2,4 milljarða króna. Það er tvöfalt hærri upphæð en sú lágmarksupphæð sem starfshópur um fjárhagsstöðuna leggur til í nýrri skýrslu. Borgarfulltrúi og stjórnarmaður Félagsbústaða gagnrýnir að skýrslunni hafi verið haldið leyndri fyrir minnihlutanum. Málið lykti af prófkjörsbaráttu Samfylkingarinnar. 21. janúar 2026 18:51 Halda framkvæmdastjóra Félagsbústaða þrátt fyrir alvarlegt vantraust Stjórn Félagsbústaða hefur ákveðið að Sigrún Árnadóttir verði áfram framkvæmdastjóri stofnunarinnar þrátt fyrir vantraust starfsfólks á henni. Sigrúnu verði jafnframt falið að leiða umbótastarf. Stéttarfélagið Sameyki hefur óskað eftir fundi með borginni vegna ástandsins hjá Félagsbústöðum. 30. maí 2025 16:17 Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Sérfræðingar í vinnuvernd telja vantraust starfsfólks Félagsbústaða til framkvæmdastjóra stofnunarinnar alvarlegt í áhættumati sem þeir unnu á vinnustaðnum. Flestir starfsmenn sögðust hafa orðið vitni að einelti eða ofbeldi. 8. maí 2025 13:19 Skyndilegur brottrekstur kornið sem fyllti mælinn Allt almennt starfsfólk Félagsbústaða skrifaði undir yfirlýsingu um vantraust á hendur framkvæmdastjóra stofnunarinnar eftir að hann rak starfsmann fyrir allra augum á starfsmannafundi í síðasta mánuði. Starfsfólkið sakar framkvæmdastjórann um „ógnarstjórn“ og virðingarleysi. 13. mars 2025 13:14 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira
Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Meirihlutinn í borgarstjórn ákvað í gær að styrkja Félagsbústaði um 2,4 milljarða króna. Það er tvöfalt hærri upphæð en sú lágmarksupphæð sem starfshópur um fjárhagsstöðuna leggur til í nýrri skýrslu. Borgarfulltrúi og stjórnarmaður Félagsbústaða gagnrýnir að skýrslunni hafi verið haldið leyndri fyrir minnihlutanum. Málið lykti af prófkjörsbaráttu Samfylkingarinnar. 21. janúar 2026 18:51
Halda framkvæmdastjóra Félagsbústaða þrátt fyrir alvarlegt vantraust Stjórn Félagsbústaða hefur ákveðið að Sigrún Árnadóttir verði áfram framkvæmdastjóri stofnunarinnar þrátt fyrir vantraust starfsfólks á henni. Sigrúnu verði jafnframt falið að leiða umbótastarf. Stéttarfélagið Sameyki hefur óskað eftir fundi með borginni vegna ástandsins hjá Félagsbústöðum. 30. maí 2025 16:17
Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Sérfræðingar í vinnuvernd telja vantraust starfsfólks Félagsbústaða til framkvæmdastjóra stofnunarinnar alvarlegt í áhættumati sem þeir unnu á vinnustaðnum. Flestir starfsmenn sögðust hafa orðið vitni að einelti eða ofbeldi. 8. maí 2025 13:19
Skyndilegur brottrekstur kornið sem fyllti mælinn Allt almennt starfsfólk Félagsbústaða skrifaði undir yfirlýsingu um vantraust á hendur framkvæmdastjóra stofnunarinnar eftir að hann rak starfsmann fyrir allra augum á starfsmannafundi í síðasta mánuði. Starfsfólkið sakar framkvæmdastjórann um „ógnarstjórn“ og virðingarleysi. 13. mars 2025 13:14