Er til ósýnileg fötlun? Arnar Helgi Lárusson skrifar 24. apríl 2026 08:30 Það er orðið áberandi í nútímasamfélagi að hugtakið fötlun“ er notað sífellt víðar svo vítt að það er farið að missa skýra merkingu. Ég tel að það sé vandamál. Ef allt er skilgreint sem fötlun, þá er í raun ekkert lengur fötlun. Fötlun ætti að vísa til raunverulegrar, augljósrar skerðingar á getu einstaklings til að starfa í daglegu lífi eitthvað sem annaðhvort sést strax eða kemur skýrt fram í samskiptum. Einstaklingur sem er blindur, heyrnarlaus, vitsmunaskertur eða bundinn við hjólastól þarf ekki að útskýra stöðu sína. Hún blasir við. Það er kjarninn í því hvað fötlun er: hún er áþreifanleg og óumdeilanleg. Á móti hefur orðið ákveðin þróun þar sem ýmis innri ástand eru sett undir sama hatt. ADHD, kvíði og þunglyndi eru nefnd sem dæmi um ósýnilega fötlun“. Hér tel ég að línan sé farin að þynnast hættulega. Þetta eru raunveruleg og stundum alvarleg ástand en þau eru ekki það sama og fötlun. Ástæðan er einföld: þessi ástand eru ekki augljós nema einstaklingurinn segi frá þeim, og í mörgum tilfellum eru þau meðhöndlanleg. Einstaklingur með ADHD getur tekið lyf og fundið verulegan mun á einbeitingu og virkni. Fólk með kvíða eða þunglyndi getur með réttri meðferð náð bata eða mikilli bætingu. Þetta er ekki sambærilegt við að vera blindur eða lamaður, ástand sem engin lyf geta lagað“. Hins vegar eru til ástand sem falla skýrt undir fötlun þrátt fyrir að vera ekki alltaf sýnileg við fyrstu sýn. Þar má nefna vitmunaskerðingu. Slík skerðing hefur djúpstæð og varanleg áhrif á getu einstaklings til að skilja, læra og taka þátt í samfélaginu, og kemur yfirleitt skýrt fram í samskiptum og daglegu lífi. Hún er því eðlisólík mörgum öðrum röskunum og á réttilega heima undir hugtakinu fötlun. Á sama tíma tel ég að mikilvægt sé að ofvíkka ekki hugtakið. Lesblinda, til dæmis, er raunveruleg áskorun sem getur haft áhrif á nám og sjálfstraust, en hún er sértæk og oft er hægt að mæta henni með aðlögun, kennslu og tækni. Hún skerðir ekki almenna getu einstaklings til að taka þátt í lífinu á sama hátt og hefðbundin fötlun gerir. Ef við hættum að gera greinarmun á þessu tvennu, þá erum við ekki að hjálpa neinum. Þvert á móti erum við að gera umræðuna óskýra og jafnvel gera lítið úr þeim sem búa við alvarlega og varanlega fötlun. Það er ekki sanngjarnt að setja allt undir sama hugtak þegar reynslan er svo ólík. Það þarf hugrekki til að segja þetta skýrt: ekki allur erfiðleiki er fötlun. Sumt er röskun, sumt er tímabundið ástand og sumt er hluti af mannlegri breytileika. Að kalla allt „fötlun“ er ekki samkennd það er einföldun sem grefur undan merkingu hugtaksins. Ef við viljum raunverulega styðja fólk, þá þurfum við að byrja á því að tala skýrt. Fötlun er annaðhvort sýnileg eða verður augljós í samskiptum. Ef hún er það ekki, þá er líklegra að um röskun sé að ræða og það er allt í lagi. En það er ekki það sama. Hér er ekki með neinu móti verið að vega með eða á móti röskun eða fötlun. Það sem skiptir máli er að þynna ekki hugtak svo mikið að það missi þá merkingu sem því var ætlað. Ég er allavega ekki tilbúinn að taka undir það að 30–40% ungra drengja á Íslandi séu að koma út í samfélagið „fatlaðir“ vegna lesblindu eða ofvirkni, þó svo að samkvæmt einhverjum Evrópusambandsreglum séu þessar raskanir tilgreindar sem fatlanir. Orð teikna myndir, og þegar orð eru notuð kemur yfirleitt sterkasta sviðsmyndin upp. Sendum ekki unga fólkið okkar út í lífið með ranga sviðsmynd af sjálfu sér. Fatlað fólk þarf alls ekki að vera á örorkulífeyri og er oft í fullri vinnu. Á sama tíma eru örorkulífeyrisþegar ekki endilega fatlaðir í þeim skilningi sem ég hef verið að fjalla um hér. Auðvitað eru til dæmi sem falla á milli og passa ekki fullkomlega í þessar línur, en það breytir ekki meginatriðinu. Ég tel mikilvægt að velta þessu upp, ekki til að útiloka eða dæma, heldur til að skapa umræðu um hvernig við notum hugtök og hvaða merkingu við leggjum í þau. Höfundur er einyrki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar