Endurræsing hafin hjá Norðuráli Freyja Þórisdóttir skrifar 24. apríl 2026 09:47 Frá Norðuráli á Grundartanga. Vísir/Vilhelm Endurræsing er hafin hjá Norðuráli eftir að bilun síðasta október varð til þess að framleiðsla dróst saman um tvo þriðju. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar þessa árs. Samkvæmt áætlunum í nóvember var gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni gæti hafist eftir ellefu til tólf mánuði.
Framleiðsla var stöðvuð í annarri af tveimur kerlínum álvers Norðuráls í október síðasta árs en var það í kjölfar bilunar í rafbúnaði álversins sem varð þriðjudaginn 21. október. Bilunin olli því að álframleiðsla á Grundartanga skertist um tvo þriðju. Þá var óljóst hve langan tíma tæki að koma framleiðslunni í fullan gang á ný og hafði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra orð á því að staðan væri grafalvarleg. Formaður Verkalýðsfélags Akraness sagði einnig frá því að félagsfólk væri kvíðið vegna stöðunnar. Frá upphafi lá fyrir að tekið gæti heilt ár að fá nýja spenna til landsins og enn er áætlað að þeir verði komnir og tilbúnir til uppsetningar næsta haust, segir í tilkynningu frá Century aluminum, móðurfélagi Norðuráls. Til að stytta þann tíma sem kerlínan liggur niðri hafi strax hafist vinna við að athuga hvort hægt væri að gera við biluðu spennana og nota þá tímabundið, þar til þeir nýju kæmu til landsins. „Sú vinna, sem fór fram í nánu sambandi við hönnuð og framleiðanda búnaðarins, hefur skilað því að hægt verður að hefja fulla framleiðslu nokkrum mánuðum fyrr en ella,“ segir í tilkynningu. Engum sagt upp Tæplega sjö hundruð manns starfa hjá fyrirtækinu en í tilkynningu segir að ákveðið hafi verið að fækka ekki í starfsmannahóp fyrirtækisins í kjölfar bilunarinnar. Það hefur frá því að bilunin kom upp unnið við að gera kerlínuna tilbúna fyrir endurræsingu. „Ljóst er að fyrirtækið væri ekki jafnvel í stakk búið til að hefja framleiðslu og raun ber vitni ef ekki væri fyrir það einvala lið sem hjá Norðuráli starfar,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Bilun hjá Norðuráli Áliðnaður Hvalfjarðarsveit Stóriðja Tengdar fréttir „Alvarlegt áfall á Grundartanga” sem beri að bregðast við hratt Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, lýsir alvarlegum áhyggjum af þeirri stöðu sem uppi er á Grundartanga en Norðurál tilkynnti um það í gær að framleiðsla hafi verið stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga vegna bilunar í rafbúnaði. Um er að ræða mikið áfall fyrir starfsemina, starfsfólkið og samfélagið allt á Akranesi og í nærsveitum að sögn Vilhjálms. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru uppi töluverðar áhyggjur meðal starfsfólks um mögulegan atvinnumissi vegna stöðunnar. 22. október 2025 09:53 Viðgerð muni taka einhverja mánuði Forstjóri Norðuráls segir mikið tjón blasa við eftir að starfsemi fyrirtækisins var stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga í gær. Hann segir einhverja mánuði þar til starfsemi verði komin í eðlilegt horf á ný. 22. október 2025 17:50 Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Fulltrúar Norðuráls skoða nú möguleikann á því að gera við spenna sem biluðu í síðasta mánuði og nota þá tímabundið þar til nýir fást. Áætlað er að biðin eftir nýjum spennum gæti tekið allt að ár. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um uppsagnir starfsmanna vegna ástandsins. 7. nóvember 2025 08:24 Allt á uppleið á Grundartanga Eigandi Norðuráls á Grundartanga gerir ráð fyrir því að álverið munu ná fullum afköstum í lok júlí næstkomandi. Afköst álversins hafa aðeins verið þriðjungur af því sem þau eru vanalega eftir að bilun varð í annarri af tveimur kerlínum þess í október síðastliðnum. Talið var að viðgerð gæti tekið allt að ár. 20. febrúar 2026 10:10 Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira
„Alvarlegt áfall á Grundartanga” sem beri að bregðast við hratt Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, lýsir alvarlegum áhyggjum af þeirri stöðu sem uppi er á Grundartanga en Norðurál tilkynnti um það í gær að framleiðsla hafi verið stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga vegna bilunar í rafbúnaði. Um er að ræða mikið áfall fyrir starfsemina, starfsfólkið og samfélagið allt á Akranesi og í nærsveitum að sögn Vilhjálms. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru uppi töluverðar áhyggjur meðal starfsfólks um mögulegan atvinnumissi vegna stöðunnar. 22. október 2025 09:53
Viðgerð muni taka einhverja mánuði Forstjóri Norðuráls segir mikið tjón blasa við eftir að starfsemi fyrirtækisins var stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga í gær. Hann segir einhverja mánuði þar til starfsemi verði komin í eðlilegt horf á ný. 22. október 2025 17:50
Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Fulltrúar Norðuráls skoða nú möguleikann á því að gera við spenna sem biluðu í síðasta mánuði og nota þá tímabundið þar til nýir fást. Áætlað er að biðin eftir nýjum spennum gæti tekið allt að ár. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um uppsagnir starfsmanna vegna ástandsins. 7. nóvember 2025 08:24
Allt á uppleið á Grundartanga Eigandi Norðuráls á Grundartanga gerir ráð fyrir því að álverið munu ná fullum afköstum í lok júlí næstkomandi. Afköst álversins hafa aðeins verið þriðjungur af því sem þau eru vanalega eftir að bilun varð í annarri af tveimur kerlínum þess í október síðastliðnum. Talið var að viðgerð gæti tekið allt að ár. 20. febrúar 2026 10:10