Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar 24. apríl 2026 11:32 Það þurfti frétt í Financial Times til að fréttamiðlar og landsmenn tækju inn þá lykilstaðreynd að Evrópusambandið (ESB) er tilbúið að taka tillit til sérstöðu Íslands og ríkum hagsmunum í sjávarútvegi. Skýr yfirlýsing ESB Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri ESB, segir í viðtali við blaðið að ESB sé opið fyrir að „veita Íslandi undanþágur frá fiskveiðistefnu sambandsins“ (svo notuð sé þýðing mbl.is um málið). Morgunblaðið sjálft hefur ennþá ekki birt starfkrók um þessa yfirlýsingu á prenti, svo ég geti séð. Hingað til hefur umræða hörðustu andstæðinga frekari viðræðna við ESB gengið út á það að „ekki væri um neitt að semja“. Undanþágur væru ekki í boði, og síst af öllu í sjávarútvegsmálum. Þessi málflutningur er nú úr sögunni. Látum á samninga reyna Kjarni málsins er að það eru þjóðarhagsmunir að láta á samninga um aðild að Evrópusambandinu reyna, með því að segja já, þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust. Þannig fáum við úr því skorið hvaða samningum við náum, og þurfum ekki að geta okkur til um það. Í húfi eru lægri vextir fyrir heimili og fyrirtæki, betri samkeppnishæfni atvinnulífs, enn sterkari staða í öryggis- og varnarmálum, vörn innan tollabandalags í alþjóðlegu umhverfi tollastríða og þannig mætti áfram telja. Það felst engin hætta í því að láta á samninga reyna. Önnur þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin um endanlega samninga. Þar munu því liggja fyrir samningsniðurstöður um gjaldmiðlamálin, sjávarútveg, varnar- og öryggismál, tollabandalagið og allt annað. Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Það þurfti frétt í Financial Times til að fréttamiðlar og landsmenn tækju inn þá lykilstaðreynd að Evrópusambandið (ESB) er tilbúið að taka tillit til sérstöðu Íslands og ríkum hagsmunum í sjávarútvegi. Skýr yfirlýsing ESB Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri ESB, segir í viðtali við blaðið að ESB sé opið fyrir að „veita Íslandi undanþágur frá fiskveiðistefnu sambandsins“ (svo notuð sé þýðing mbl.is um málið). Morgunblaðið sjálft hefur ennþá ekki birt starfkrók um þessa yfirlýsingu á prenti, svo ég geti séð. Hingað til hefur umræða hörðustu andstæðinga frekari viðræðna við ESB gengið út á það að „ekki væri um neitt að semja“. Undanþágur væru ekki í boði, og síst af öllu í sjávarútvegsmálum. Þessi málflutningur er nú úr sögunni. Látum á samninga reyna Kjarni málsins er að það eru þjóðarhagsmunir að láta á samninga um aðild að Evrópusambandinu reyna, með því að segja já, þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust. Þannig fáum við úr því skorið hvaða samningum við náum, og þurfum ekki að geta okkur til um það. Í húfi eru lægri vextir fyrir heimili og fyrirtæki, betri samkeppnishæfni atvinnulífs, enn sterkari staða í öryggis- og varnarmálum, vörn innan tollabandalags í alþjóðlegu umhverfi tollastríða og þannig mætti áfram telja. Það felst engin hætta í því að láta á samninga reyna. Önnur þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin um endanlega samninga. Þar munu því liggja fyrir samningsniðurstöður um gjaldmiðlamálin, sjávarútveg, varnar- og öryggismál, tollabandalagið og allt annað. Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga.
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar