Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína BL 28. apríl 2026 13:04 Bræðurnir Rúnar Þór Vilhjálmsson og Ólafur Vilhjálmsson leigubílstjórar voru meðal fyrstu eigenda Hongqi á Íslandi. Framleiðandinn bauð þeim í draumaferð til Kína eftir að hafa heyrt hve vel þeir létu af bílunum. Það er ekki á hverjum degi sem íslenskir leigubílstjórar fá persónulegt boð frá einum virtasta lúxusbílaframleiðanda Kína um að heimsækja höfuðstöðvar fyrirtækisins og kynnast framtíðarsýn þess af eigin raun.
Það var þó nákvæmlega það sem kom fyrir bræðurna Rúnar Þór Vilhjálmsson og Ólaf Vilhjálmsson þegar kínverski bílaframleiðandinn Hongqi bauð þeim nýverið í ferð til Kína. Forsvarsmenn Hongqi höfðu heyrt af óvenju mikilli notkun þeirra bræðra á bílum framleiðandans hér á landi og jákvæðri reynslu þeirra af akstrinum. Bræðurnir fengu afhentan sitthvorn Hongqi EHS9 rafbílinn í janúar 2023. Á rúmum þremur árum hafa bræðurnir ekið Hongqi-bílum sínum samtals yfir 500.000 kílómetra við íslenskar aðstæður, sem er akstur sem jafnast á við meira en tólf hringi í kringum jörðina. „Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu,“ segir Ólafur þegar hann rifjar upp símtalið frá BL, umboðsaðila Hongqi á Íslandi. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt og algjörlega einstakt tækifæri. Maður átti alls ekki von á því að fá boð um að heimsækja Kína, einungis vegna þess að maður er ánægður með bílinn sinn. En kannski er einstakt hversu mikil notkun okkar er þar sem við notum bílana auðvitað einnig í vinnunni alla daga og erum gríðarlega ánægðir með þá, þrátt fyrir rosalega mikla notkun.“ Kynntust framtíð bílaframleiðslu af eigin raun Í ferðinni heimsóttu bræðurnir meðal annars höfuðstöðvar Hongqi í Changchun þar sem þróun, hönnun og framleiðsla nýrra bifreiða fer fram. Þá fengu þeir einnig að sækja alþjóðlegu bílasýninguna í Peking þar sem nýjustu tæknilausnir og framtíðargerðir margra stærstu framleiðenda heims voru til sýnis. Fyrir tvo menn sem eyða stærstum hluta vinnudagsins undir stýri var upplifunin einstök. „Upplifunin var eiginlega eins og að stíga inn í framtíðina,“ segir Rúnar. „Maður sá hversu hratt tæknin er að þróast og hversu langt þessir framleiðendur eru komnir. Það var líka magnað að sjá stærðina á þessu öllu saman og hversu metnaðarfull áformin eru.“ Að sögn Rúnars, sáu þeir að Hongqi ætli sér stóra hluti á Alþjóðamarkaði næstu árin og þá sérstaklega í Evrópu en þar spila rafbílar framleiðandans stór hlutverk. Saga Hongqi er auðvitað einnig áhugaverð, en Hongqi er einn elsti og virtasti bílaframleiðandi Kína og framleiddi fyrsta bílinn sem var framleiddur í Kína árið 1958. Það var lúxusbíll ætlaður fyrir háttsetta embættismenn ríkisins og hefur Hongqi þjónað þjóðarleiðtogum landsins í áratugi og nú keyrum við um á þessum glæsilegu bílum, segir Rúnar og hlær. Mikill akstur þeirra bræðra vakti athygli framleiðandans Rúnar er nú að nálgast 300 þúsund kílómetra á sínum Hongqi EHS9, einum stærsta rafknúna lúxusjeppa sem í boði er á íslenskum markaði. Ólafur hafði ekið um 200 þúsund kílómetra á samskonar bíl áður en hann skipti nýverið yfir í nýrri og sportlegri gerð, Hongqi EHS7. Bræðurnir fengu afhentan sitthvorn Hongqi EHS9 rafbílinn í janúar 2023 og voru meðal fyrstu eigenda Hongqi á Íslandi. Rúnar hefur starfað sem leigubílstjóri í rúm 22 ár og segir reynslu af fjölmörgum bifreiðum gera samanburðinn einfaldan. „Ég hef keyrt mjög marga bíla í gegnum tíðina og það tekur yfirleitt ekki langan tíma að finna hvort maður sé á réttum bíl. Þegar ég fór á Hongqi fann maður strax að þetta var bíll sem sameinaði kraft, þægindi og akstursmýkt á hátt sem ég hafði ekki upplifað áður.“ Ólafur segir ákvörðunina um að velja Hongqi á sínum tíma einnig hafa ráðist af hagkvæmni. „Við vorum að leita að stórum rafbíl sem gæti sinnt þessari miklu daglegu keyrslu án þess að það kæmi niður á þægindum fyrir okkur eða farþegana. Hongqi uppfyllti það mjög vel.“ Segja bílana hafa staðist íslenskan raunveruleika Íslenskar aðstæður eru sjaldnast vægar prófraunir fyrir bifreiðar sem eru í stöðugri notkun allan ársins hring. Snjór, hálka, kuldi, holóttir vegir og langir vinnudagar setja bæði búnað og innréttingar undir verulegt álag. Bræðurnir segja því aksturinn hafa verið sannkallað þolpróf. „Það sem hefur komið mér mest á óvart er hvað bíllinn er öruggur og stöðugur í vetrarfærð,“ segir Ólafur. Rúnar segir endinguna ekki síður hafa staðið upp úr. „Þegar maður er kominn með nærri 300 þúsund kílómetra á bíl þá fer venjulega að bera á talsverðu sliti, bæði á sætum, innréttingum og akstursupplifuninni sjálfri. En hér sér ótrúlega lítið á honum. Hann er ennþá þéttur, hljóðlátur og mjög góður í akstri.“ Þeir nefna jafnframt að traust þjónusta skipti sköpum þegar bíll sé jafn stór hluti af daglegum rekstri. „Það hefur auðvitað þurft að sinna eðlilegu viðhaldi eins og gengur, en þjónustan hjá BL hefur verið mjög fagleg og hraðvirk. Það skiptir öllu þegar bíllinn er vinnustaðurinn manns.“ Farþegar finna muninn Viðbrögð farþega hafa einnig verið eftirtektarverð að sögn þeirra bræðra. Rúnar segir það nánast daglegt að viðskiptavinir nefni sérstaklega hversu mjúk og hljóðlát ferðin sé. „Fólk finnur strax að þetta er ekki hefðbundinn leigubíll. Það er mikið rými, sætaþægindi og ákveðinn lúxus sem fólk tekur eftir.“ Ólafur segir erlenda ferðamenn oft spyrja sérstaklega út í bílinn. „Margir þekkja merkið eða tengja það við lúxusbíla sem þeir hafa séð erlendis. Svo eru aðrir sem verða einfaldlega hissa á því hversu glæsilegur og rúmgóður bíll þetta er.“ Nýjar gerðir að styrkja stöðu merkisins hér á landi Sókn Hongqi á íslenskum markaði hefur aukist jafnt og þétt frá því merkið kom hingað til lands og fleiri gerðir bæst í hópinn. Nýverið hóf BL meðal annars afhendingar á Hongqi EHS5, nýjum sportlegum rafjeppa sem byggir á sömu hönnunarstefnu og tæknigrunni og stærri systurgerðir merkisins. Að sögn bræðranna verður áhugavert að fylgjast með áframhaldandi þróun framleiðandans á næstu árum. „Eftir að hafa séð hvað þeir eru með í undirbúningi þá er ljóst að þetta er merki sem fólk á eftir að sjá miklu meira af,“ segir Rúnar.
Bílar Vistvænir bílar Kína Mest lesið Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl