Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar 26. apríl 2026 13:03 Aukið jafnrétti með jákvæðri mismunun fyrir þann með hærri launin Þegar talað er um jákvæða mismunun, kemur fyrst upp í hugann eitthvert regluverk um að það sé í lagi að gera betur við konur vegna sögulegra forréttinda karla. Þegar talað er um jákvæða mismunun, kemur fyrst upp í hugann eitthvert regluverk um að það sé í lagi að gera betur við konur vegna sögulegra forréttinda karla. Þegar við tölum um fæðingarorlof þá vil ég að börnin njóti jákvæðrar mismununar. Þegar foreldrar taka laun í fæðingarorlofi, vil ég meina að til þess að það foreldrið sem hefur lægri laun eigi rétt á að klára sína orlofsgreiðslu, þurfi sá aðilinn sem hefur hærri laun að hafa tæmt sínn rétt til orlofs. Eins ætti þetta að gilda vegna veikinda barna, fyrst tæmi sá launahærri svo taki við það foreldrið sem hafi lakari kjör. Í mínum huga væri þetta jákvæð mismunun í þágu jafnréttis. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að við þurfum að endurskoða löggjöfina um fæðingar- og foreldraorlof frá grunni. Ef við skoðum hvað hefur gerst frá aldamótum varðandi fæðingartíðni og aldur frumbyrja, eru breytingarnar svakalegar. Ég átti sæti í jafnréttis- og fjölskyldunefnd ASÍ þegar lögin um fæðingar- og foreldraorlof 95/2000 voru í undirbúningi. Ég var reyndar varamaður fyrir fulltrúa sjómanna í nefndinni, Verkalýðfélagið Vaka á Siglufirði sem ég stýrði þá var með sjómannadeild og það varð að samkomulagi milli mín og aðalmannsins frá SSÍ að þennan slag tæki ég. Ég hafði líka reynslu af því að eignast 4 börn á árunum 1975-1984 og faðirinn var á sjónum. Hann tók launalaus leyfi til að taka þátt í hugsa um börnin. Ég átti þátt í því að í upphafi var ekki þak á greiðslum í fæðingarorlofi, því að á þeim tíma voru íslenskir sjómenn með launahæstu einstaklingum á barneignaaldri. Ofurlaun forstjóra og bankastjóra voru ekki farin að rugla kerfinu. Núna þyrftum við að setja hærra gólf varðandi launaskerðingu þeirra foreldra sem geta ekki misst krónur út framfærslunni. Við þurfum líka að brúa ummönnunargjána og greiða foreldrum laun í foreldraorlofi. Það sem hefur gerst á liðnum aldarfjórungi er ótrúlegt. Aldur frumbyrja hefur hækkað hratt, fæðingartíðni hefur lækkað mjög og nú stefnir í að okkur muni fækka ef fram heldur sem horfir (https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/mannfjoldi/faedingar-2024/). Ef ekki væri fyrir straum fólks erlendis frá til starfa hér á landi, væri um fólksfækkun að ræða. Ég er þeirrar skoðunar að við höfum ekki efni á því að gera ekki vel við foreldra á Íslandi. Helst þurfum við að verðlauna þá sérstaklega sem vilja eignast börn. Að fá sér kött Viðhorf ungs fólks til barneigna og almennt verðmætamat hefur gjörbreyst. Á síðari hluta 20. aldarinnar var talið sjálfssagt að fólk eignaðist 4 til 10 börn, börnin kæmu í heiminn frekar óskipulega, jafnvel meðan foreldrarnir voru enn í námi og hugsunin þetta reddast, réði ríkjum. Það verður æ algengara í hinum vestræna heimi að ungt fólk taki meðvitaða ákvörðun um að eignast ekki born. Það helgar líf sitt starfsframa og vill svo nota frítímann til að ferðast og njóta. Húsnæðisþörf barnlausra einstaklinga er minni og svo eru þau laus við alla vinnuna sem felst í því að eignast barn og ala það upp. Hin sjálfhverfa Z kynslóð er lítið að velta fyrir sér sjálfbærni samfélaga. Þau vilja meira frelsi og minni skuldbindingar. Það er jafnvel of flókið að fá sér hund, mun einfaldara að fá sér kött. Höfundur er amma á eftirlaunum og ævintýrasmiður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar