Samfylkingin stærst á Akureyri Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. apríl 2026 14:05 Það kennir ýmissa grasa í bæjarmálum á Akureyri. Vísir/Vilhelm Samfylkingin yrði stærsti flokkurinn í bæjarstjórn á Akureyri ef gengið yrði til kosninga nú og myndi bæta við sig tveimur bæjarfulltrúum frá því árið 2022. L-listinn mælist með næstmesta fylgið, rúmu prósentustigi minna en listinn fékk í síðustu kosningum. Sjö framboð myndu ná sætum í bæjarstjórn yrði gengið til kosninga nú.
Þetta eru niðurstöður í nýrri könnun Maskínu sem gerð var fyrir DV. Samfylkingin fengi 18,4 prósenta fylgi og þrjá bæjarfulltrúa en fékk árið 2022 11,9 prósenta fylgi og einn bæjarfulltrúa. Flokkurinn er utan núverandi meirihluta L-lista, Miðflokks og Sjálfstæðisflokks, er í dag fimmti stærsti flokkur í bæjarstjórn en yrði sá stærsti ef gengið yrði til kosninga nú. L-listinn á í dag þrjá bæjarfulltrúa í borgarstjórn. Samkvæmt könnun Maskínu myndi listinn missa einn bæjarfulltrúa, fengi 17,2 prósenta fylgi og þar með tvo. Árið 2022 hlaut listinn 18,4 prósenta fylgi og þrjá bæjarfulltrúa. Rétt á eftir L-lista kemur Sjálfstæðisflokkur með 16,7 prósenta fylgi í könnun Maskínu og fengi tvo bæjarfulltrúa, sama fjölda og árið 2022 þegar flokkurinn fékk átján prósenta fylgi í kosningum. Þá fengi Framsókn einn mann, VG einn mann og Viðreisn einn mann yrði gengið til kosninga nú. Akureyrarlistinn mælist ekki inni. Ekki yrði hægt að mynda óbreyttan meirihluta L-lista, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks yrðu niðurstöður kosninga á þennan veg. Fram kemur í umfjöllun DV að ýmis meirihlutamynstur séu í boði, meðal annars geti Framsókn eða Viðreisn hlaupið undan bagga með núverandi meirihluta. Þá geti Samfylking myndað meirihluta, til dæmis með L-lista og Viðreisn eða Framsóknarflokki eða Vinstri grænum.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Erlent Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Innlent Fleiri fréttir Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Sjá meira