„Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Siggeir Ævarsson skrifar 26. apríl 2026 21:26 Kári Jónsson var frábær í seinni hálfleik í kvöld Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Kári Jónsson steig heldur betur upp í seinni hálfleik í kvöld þegar Valsmenn jöfnuðu einvígið gegn Grindavík í 4-liða úrslitum Bónus-deildar karla með 79-72 sigri.
Kári mætti í viðtal til Andra Más strax eftir leik sem bað Kári um að greina það hvar sigurinn varð til í leik sem var afar jafn í fyrri hálfleik. „Við náðum fínu áhlaupi um miðbik seinni hálfleiks. Settum nokkur skot og náðum stoppum. Bjuggum til smá mun sem við náðum að halda út í þetta skiptið.“ Það var jafnt á öllum tölum í fyrri hálfleik, staðan 41-41, og Kári var alls ekki sáttur með spilamennsku liðsins fyrstu 20 mínúturnar. „Ekki gott! Svona ef ég á að segja alveg eins og er. Við vorum ekki góðir í fyrri hálfleik. Við vorum ekki að gera nógu vel í því sem við ætluðum að gera. Við vorum ekki nógu sáttir og eiginlega bara heppnir að þetta var jafn leikur í hálfleik.“ Valsmenn hófu leik án Lazar Nicolic sem meiddist í síðasta leik og misstu svo Frank Aron Booker út af meiddan einnig í fyrri hálfleik. Kári var mjög sáttur með það hvernig Valsmönnum tókst að leysa úr þeirri stöðu og hrósaði Igor Maric sérstaklega, en Igor setti fjóra þrista í fjórum skotum í fyrri hálfleik. „Bara mjög vel. Igor kemur geggjaður inn, sérstaklega í fyrri hálfleik. Menn stíga upp og gera betur og eru tilbúnir að bakka upp hvern annan.“ Kári var sjálfur stigalaus í fyrri hálfleik en endaði með 16 stig, stigahæstur Valsmanna ásamt Callum Lawson. „Ég hélt bara áfram að vera aggressívur og skjóta boltanum. Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur og það fóru fleiri ofan í, sem betur fer!“ Grindvíkingar klóruðu aðeins í bakkann undir lokin en Kári sagði að það hefði ekki valdið neinum skjálfta hjá Valsmönnum. „Alls ekki sko. Við gerðum bara mjög varnarlega á þessum síðustu mínútum og líka sóknarlega. Vorum að fá góð skot í flestum sóknum. Við náðum að klára þetta núna, vorum svekktir með að klúðra þessu niður í síðasta leik en gerðum betur í dag.
Bónus-deild karla Valur Körfubolti Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira