Hnéskel Franks Arons brotnaði Valur Páll Eiríksson skrifar 27. apríl 2026 13:32 Frank Aron er í heljarinnar gipsi vegna hnéskeljarbrots sem mun halda honum frá vellinum í hálft ár hið minnsta. Vísir/Sigurjón Tímabili Frank Arons Booker, leikmanns Vals í körfubolta, er lokið. Hann hnéskeljarbrotnaði í 79-72 sigri Vals á Grindavík í undanúrslitum Bónus deildar karla á Hlíðarenda í gærkvöld.
Frank Aron fór sárþjáður af velli snemma leiks eftir að hafa lent saman við liðsfélaga sinn Keyshawn Woods. Við myndatöku kom í ljós að hnéskel hans brotnaði við áreksturinn og ljóst að tímabili hans er lokið. Frank Aron á eftir að fá út úr frekari myndatökum og ómskoðunum þar sem hann fær úr því skorið hvort liðbönd eða krossbönd hafi skaddast einnig. Ljóst er að hann verður frá í hálft ár hið minnsta vegna meiðslanna. Um er að ræða töluvert högg fyrir Valsmenn sem jöfnuðu einvígið við Grindavík 1-1 með sigrinum í gær. Fyrir var Lazar Nikolic frá vegna meiðsla í Valsliðinu. Frank Aron braut hnéskelina á sama stað í sömu höll gegn sama andstæðingi og liðsfélagi hans Kristófer Acox í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn fyrir tveimur árum síðan. Það tók Kristófer þónokkra mánuði að ná sér góðum af sínum meiðslum. Frank Aron verður til viðtals í Sportpakkanum á Sýn í kvöld.
Bónus-deild karla Valur UMF Grindavík Tengdar fréttir Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Valsmenn urðu fyrir áfalli í fyrsta leikhluta í leik sínum gegn Grindavík í undanúrslitum Bónus deildarinnar í körfubolta sem nú stendur yfir. Frank Aron Booker, leikmaður liðsins meiddist á hné og fór sárþjáður af velli. 26. apríl 2026 19:47 Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira
Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Valsmenn urðu fyrir áfalli í fyrsta leikhluta í leik sínum gegn Grindavík í undanúrslitum Bónus deildarinnar í körfubolta sem nú stendur yfir. Frank Aron Booker, leikmaður liðsins meiddist á hné og fór sárþjáður af velli. 26. apríl 2026 19:47