Hinn þríklofni Jóhann Páll Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 28. apríl 2026 15:41 Í nafni loftslagsins, orkunnar og hinnar gleymdu náttúru Þegar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið var stofnað, var því lýst sem skrefi í átt að meiri skilvirkni. Hugmyndin var sú að samþætta stóru málin: loftslagsbreytingar, orkuskipti og náttúruvernd. En eftir tæp tvö ár blasir við blákaldur veruleikinn: Þessi þrískipting er ekki að búa til samhljóm, heldur óleysanlega innri togstreitu þar sem einn hatturinn virðist alltaf vera stærri en hinir. Kæri Jóhann Páll, Ég ætla að segja það hreint út: Þú hefur samúð mína. Ég hef fulla trú á því að þú viljir vinna vel, að þú hafir hugsjónir og brennir fyrir því að skila samfélaginu betra en þú tókst við því. En þú ert í embætti sem er hannað til þess bregðast einhverjum, alveg sama hvað þú gerir. Í Silfrinu í vikunni sáum við mann sem þurfti að verja línu sem var hvorki náttúruverndarsinnum né orkufyrirtækjum að skapi. En vandinn er dýpri en bara samskiptaleysi; hann liggur í því hvernig þessi þrjú hlutverk þín fórna hvert öðru þegar á reynir. Orkuskipti eða bara orkusala? Sem loftslagsráðherra talar þú mikið fyrir orkuskiptum. Það hljómar vel í ræðustólnum. En við sem fylgjumst með sjáum að þær virkjanir sem nú er þrýst á, eru tæpast í þágu orkuskipta, ekki til að knýja bílaflotann okkar eða fiskiflotann. Þær eiga að skaffa orku fyrir gagnaver, tæknifyrirtæki og annan orkufrekan iðnað sem hefur lítið með raunveruleg orkuskipti að gera. Hér tekur orkumálaráðherrann völdin. Hann sér tækifæri í vexti og sölu, á meðan umhverfisráðherrann þarf að horfa upp á fórnarkostnaðinn: ósnortin víðerni og dýrmæta náttúru sem getur eyðilagst undir framkvæmdum sem eru seldar okkur sem „grænar“ en þjóna í raun öðrum hagsmunum. Loftslagsráðherrann sem berst á móti Annað sem vekur furðu okkar sem brennum fyrir loftslagsmálum er hlutverk ráðherrans gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum. Sem loftslagsráðherra ættir þú að vera fremstur í flokki við að innleiða aðgerðir til að draga úr losun og auka ábyrgð fyrirtækja. Þess í stað sjáum við að ríkisstjórnin virðist eyða mikilli orku í að leita undanþága frá loftslagsstefnu ESB og draga lappirnar í stað þess að taka þátt í sameiginlegum loftslagsaðgerðum af fullum þunga. Þótt orkumálaráðherrann og loftslagsráðherrann nái kannski saman um að það þurfi að „framleiða meira“, þá situr raunveruleg loftslagsstjórnun á hakanum. Það er ekki nóg að vera „með orkuskipti á snærum sínum“ ef starfið felst aðallega í því að verja óbreytt ástand sem hægir á nauðsynlegum breytingum. Hvar er málsvarinn? Þetta fyrirkomulag veldur togstreitu sem bitnar á okkur öllum: Umhverfisverndarfólk saknar ráðherra sem talar fyrir náttúruvernd án þess að nota loftslagsmálin sem skálkaskjól fyrir nýjar virkjanir. Loftslagsgeirinn saknar ráðherra sem tekur slaginn fyrir regluverki og raunverulegum samdrætti, en ekki bara fleiri kílóvattstundum. Orkugeirinn fær ekki þann talsmann sem hann kallar eftir, því ráðherra er alltaf í hlutverki dómara eigin mála. Jóhann Páll, þú vilt vinna vel. En þessi uppstilling er að breyta þér í pólitískan fimleikamann sem er að reyna að splitta sér á milli þriggja stóla sem eru að færast hver frá öðrum og ég er alls ekki viss um að það henti nokkrum manni. Er ekki kominn tími til að viðurkenna að náttúran þarf sinn eigin málsvara, loftslagið sína eigin festu og orkumálin sitt eigið aðhald? Við þurfum ráðherra sem geta tekist á og veitt hver öðrum mótvægi, í stað þess að einn maður þurfi að bera þá þungu byrði að vera í stöðugri rökræðu við sjálfan sig fyrir framan þjóðina. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann svo og sérlegur áhugamaður um Já við ESB-viðræðum . Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Sjá meira