Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Samúel Karl Ólason skrifar 29. apríl 2026 15:01 Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur birt úrskurð sem gæti haft gífurleg áhrif á kosningar í Bandaríkjunum og vægi atkvæða fólks sem tilheyrir minnihlutahópum þar í landi. AP/Rahmat Gul Hæstiréttur Bandaríkjanna birti í dag úrskurð sem gæti haft mikil áhrif á þingkosningarnar í nóvember, með því að gera Repúblikönum kleift að breyta fjölmörgum kjördæma á landsvísu þar sem þeldökkir Bandaríkjamenn eða Bandaríkjamenn af latneskum uppruna eru í meirihluta. Kjósendur í slíkum kjördæmum eru líklegri til að kjósa Demókrata.
Málaferlin sem hæstiréttur hefur úrskurðað í sneru að kjördæmi í Louisiana. Meirihluti dómara, þeir dómarar sem skipaðir voru af forseta úr Repúblikanaflokknum, sögðu að of mikil áhersla hefði verið lögð á kynþátt kjósenda þegar kjördæmið var teiknað. Samuel Alito, skrifaði fyrir hönd sex dómara meirihlutans að kjördæmið færi gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Úrskurðurinn veikir verulega lög frá 1965 sem ætlað var að verja minnihlutahópa gegn því að kjördæmum sé breytt til að draga úr vægi atkvæða þeirra. Samkvæmt AP fréttaveitunni er áætlað að úrskurðurinn gæti leitt til breytinga í nærri því sjötíu kjördæmum Bandaríkjanna, af 435. Elena Kagan skrifaði fyrir hönd þeirra þriggja dómara sem skipaðir voru af forseta úr Demókrataflokknum að úrskurðurinn myndi hafa umfangsmiklar og alvarlegar afleiðingar. Áðurnefnd lög frá 1965 væru svo gott sem ekki lengur í gildi. Óljóst er hvort að ráðamenn í ríkjum þar sem umrædd kjördæmi eru hafi tíma til að teina ný kjördæmi fyrir kosningarnar í nóvember. Repúblikanar hafa á undanförnum mánuðum lagt mikla áherslu á það að reyna að breyta kjördæmum í mörgum af þeim ríkjum sem þeir stjórna, að kröfu Donalds Trump, forseta, og með því yfirlýsta markmiði að reyna að fækka þingmönnum Demókrataflokksins og viðhalda naumum meirihluta þeirra í fulltrúadeild þingsins. Það að breyta kjördæmum með þessum hætti, í þágu annars flokksins í Bandaríkjunum, kallast „Gerrymandering“ á ensku. Í einföldu máli sagt er þetta gert með því að þjappa mörgum kjósendum eins flokks í fá kjördæmi og þynna út atkvæði annarra. Þetta hefur lengi verið stundað í Bandaríkjunum og þess vegna eru í raun tiltölulega fá þingsæti þar í landi sem raunverulega er barist um í kosningum. Úrskurður hæstaréttar frá 2019 gaf í raun ráðamönnum í ríkjum Bandaríkjanna að miklu leyti frjálsar hendur i að teikna upp ný kjördæmi eftir óskum flokkanna, þar sem það er leyfilegt. Í þó nokkrum ríkjum hefur þetta verið bannað. Mikið í húfi í kjördæmastríðinu Kannanir hafa bent til þess að Repúblikanar eigi erfiðar kosningar í vændum. Í kjölfar þess að Repúblikanar hófu að breyta kjördæmum að áeggjan Trumps byrjuðu Demókratar að gera það einnig í ríkjum þar sem þeir eru við stjórnvölinn. Þetta hefur gengið vel hjá Demókrötum en eftir að kjósendur í Virginíu samþykktu ný kjördæmi þar náðist nánast jafntefli í þessu kjördæmastríði, eins og það hefur verið kallað. Hæstiréttur Virginíu er með til skoðunar hvort nýju kjördæmin séu lögleg. Þá er hæstiréttur Flórída með sambærilegar breytingar, Repúblikönum í vil, til skoðunar. Repúblikanar og Trump hafa miklar áhyggjur af því að Demókratar muni ná meirihluta í fulltrúadeildinni í kosningunum í nóvember. Minni líkur eru taldar á því að þeir muni einnig ná meirihluta í öldungadeildinni. Það að hafa meirihluta í fulltrúadeildinni yrði þó mikill sigur fyrir Demókrata sem gætu beitt þinginu til að reyna að koma einhverjum böndum á Trump. Meðal annars gætu þeir rannsakað störf forsetans og meðlima ríkisstjórnar hans, krafist ýmissa gagna og jafnvel ákært hann fyrir embættisbrot í þriðja sinn. Nái Demókratar einnig meirihluta í öldungadeildinni gætu þeir komið í veg fyrir að Trump geti skipað fólk í ýmis embætti á seinni helmingi kjörtímabilsins.
Bandaríkin Hæstiréttur Bandaríkjanna Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira