Viðskipti innlent

Ó­vissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfs­menn

Eiður Þór Árnason skrifar
Reykjavík Natura var áður rekið af Icelandair Hotels. 
Reykjavík Natura var áður rekið af Icelandair Hotels.  aðsend

Íslandshótel munu hefja hótelrekstur í húsnæði við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg sem hefur hýst Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samhliða því lætur Berjaya Hotels Iceland af rekstri hótelanna en malasíska fyrirtækið keypti hann af Icelandair Group árið 2019. Stjórnendur Íslandshótela hyggjast taka yfir ráðningarsamninga starfsfólks.

„Það er engin óvissa. Það er alveg klárt mál að við ætlum að endurráða fólkið til okkar,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, í samtali við fréttastofu. Þetta eigi við um allt starfsfólk sem vinni á hótelunum tveimur í dag. 

Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að sumir starfsmenn hafi verið uggandi eftir fund með stjórnendum í dag og óttast um atvinnuöryggi sitt eftir yfirtökuna þann 1. september. 

Enn ríkir óvissa um nöfn hótelanna eftir yfirtöku Íslandshótela þar sem Berjaya á vörumerkin Nordica og Natura, að sögn Davíðs. Hann telur þó líkur á því að hótelið við Suðurlandsbraut verði áfram rekið undir merkjum alþjóðlegu Hilton-keðjunnar.

Berjaya hætti við

Áður var greint frá því að leigusamningur fasteignafélagsins Reita, sem á húsnæðið, og Berjaya væri að renna út og Íslandshótel vildu taka við en Berjaya gæti enn nýtt sér forleigurétt. Berjaya gaf út í maí 2025 að það ætlaði að nýta réttinn og leigja húsnæðið áfram en hættu síðar við. Þá komu Íslandshótel aftur að samningaborðinu með Reitum, að sögn Davíðs.

„Þetta er búið að taka svolítið langan tíma, það verður að viðurkennast, en þetta hafðist.“ Íslandshótel leggi áherslu á að yfirfærslan gangi sem best fyrir sig.

Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga, greininga og viðskiptaþróunar hjá Reitum, Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslandshótela, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita og Svana Huld Linnet, framkvæmdarstjóri viðskiptavina.Reitir

Reitir gera ráð fyrir ríflegri tekjuaukningu

Reitir hafa gert samkomulag við Íslandshótel um að nýr leigusamningur vegna hótelanna taki gildi 1. september. „Nýr leigusamningur var undirritaður 10. apríl 2025 og nær til 17 ára. Með samkomulagi hefur núverandi leigutaki fallið frá forleigurétti sínum og leigutími hans verið framlengdur til 31. ágúst 2026,“ segir í tilkynningu frá Reitum til Kauphallar. 

Fasteignirnar séu samtals 26.500 fermetrar að stærð og ráðist verði í endurbætur á þeim sem feli meðal annars í sér endurnýjun á stórum hluta gistirýma sem séu samtals um 470 talsins. Íslandshótel eru stærsta hótelkeðja landsins og munu reka nítján hótel eftir yfirtökuna. 

Reitir áætla að árleg aukning tekna og rekstrarhagnaðar vegna leigusamninganna verði um 620 milljónir króna á fyrstu tveimur og hálfu ári leigutímans en um 720 milljónir króna eftir það. Davíð vildi ekki tjá sig um nýja leigusamninginn og hvort hann feli í sér kostnaðarhækkun miðað við þann fyrri. 

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×