„Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Smári Jökull Jónsson skrifar 2. maí 2026 16:48 Íris Róbertsdóttir verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum en Eyþór Harðarson er oddviti. Vísir/Vilhelm/Ívar Fannar Oddviti Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum viðurkennir að fjaðrafokið, sem varð í kjölfar þess að tilkynnt var um Írisi Róbertsdóttir sem bæjarstjóraefni flokksins fyrir kosningarnar þann 16. maí, hafi verið erfitt.
Sagan um veru Írisar í Sjálfstæðisflokkinn nær rúm átta ár aftur í tímann. Eftir deilur um uppstillingu á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir kosningarnar árið 2018 stofnaði Íris, í félagi við fleiri sem gegnt höfðu trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðismenn, bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey sem bauð fram undir nafni H-lista í kosningunum. Það ár féll hreinn meirihluti Sjálfstæðismanna sem hafði staðið óhaggaður, undir forystu Elliða Vignissonar frá árinu 2006, og í sex kosningum af síðustu sjö. Aðeins vantaði sex atkvæði upp á til að meirihlutinn héldi velli og hefur Íris verið bæjarstjóri Vestmannaeyja í umboði H-listans í átta ár. Hann hefur á þessum átta árum átt í meirihlutasamstarfi með Eyjalistanum, samstarf sem hélt velli í kosningunum árið 2022. Endurkoman staðfest Í byrjun þessa árs fóru hins vegar að heyrast sögur úr Eyjum þess efnis að Sjálfstæðismenn vildu Írisi aftur heim. Að minnsta kosti margir þeirra. Fyrir prófkjör flokksins í mars var skrifað um fylkingar innan hans, annars vegar þeir sem vildu að Íris fengi sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í kosningnum og hins vegar þeir sem ekki enn voru búnir að fyrirgefa henni brotthvarfið sem leiddi til klofningsins átta árum fyrr. Úr varð að Eyþór Harðarson, núverandi oddviti, fór með sigur af hólmi í prófkjörinu og þegar D-listinn var birtur í lok mars mátti sjá ýmsa sem áður höfðu starfað fyrir H-listann. Þá hafði verið tilkynnt að H-listinn myndi ekki bjóða fram í kosningunum þann 16. maí. Sameiningin var staðreynd en Írisi var hvergi að sjá á listanum. Þann 10. apríl var hins vegar birt tilkynning þess efnis að Íris yrði bæjarstjóraefni listans. Hitafundur var haldinn í fulltrúaráði flokksins og ljóst að ekki var gróið um heilt eftir klofninginn árið 2018. Ekki á því að staðan sé flókin Þrír flokkar bjóða fram í kosningunum í Eyjum þann 16. maí, Sjálfstæðisflokkur, Eyjalistinn og Miðflokkurinn sem býður fram í fyrsta skipti. Mjótt gæti orðið á munum en markmið Sjálfstæðismanna er skýrt, það er að ná hreinum meirihluta. Níu sitja í bæjarstjórn Vestmannaeyja og baráttusæti Sjálfstæðismanna er því 5. sætið þar sem núverandi bæjarfulltrúinn Hildur Sólveig Sigurðardóttir situr en hún hefur átt sæti í bæjarstjórn frá árinu 2015. Þá var hún oddviti Sjálfstæðismanna og sat í 2. sæti lista flokksins fyrir fjórum árum. Eins og áður segir hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í minnihluta bæjarstjórnar Vestmannaeyja frá árinu 2018 en bæjarstjóraefni flokksins fyrir komandi kosningar verið í forsvari fyrir meirihlutasamstarf H- og E-lista. Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokks, er ekki á því að þessi staða sé að einhverju leyti flókin. „Það er bara mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin og H-listinn hefur lokið störfum sínum og við erum að fá þetta fólk til baka. Þetta er fólk sem er búið að skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn í dag og það er í mínum huga bara fagnaðarefni,“ sagði Eyþór í viðtali sem birtist í Ísland í dag þar sem fjallað var um sveitastjórnarkosningar á Suðurlandi. „Þetta var erfiðast fyrst“ Mikil endurnýjun mun eiga sér stað í bæjarstjórn eftir kosningar. Eyþór og Hildur Sólveig eru þau einu af núverandi bæjarfulltrúum sem bjóða sig fram aftur og ekki öruggt að Hildur Sólveig nái inn. „Þegar við sáum það að það yrði gríðarleg endurnýjun í bæjarstjórn, við erum sennilega bara tvö úr minnihlutanum sem verðum áfram og allur meirihlutinn er að fara í burtu, þá fannst okkur tilvalið úr því Íris var tilbúin að vera bæjarstjóri áfram að tefla henni fram sem bæjarstjóraefni,“ segir Eyþór. Sjö af níu bæjarfulltrúum í Eyjum bjóða sig ekki fram í kosningunum þann 16. maí.Vísir/Hjalti Er einhugur um þetta á meðal frambjóðenda listans? „Þetta er eins og með allt annað, við á átján manna lista þurftum að ræða okkur niður á þessa lausn og þessa afstöðu. Við förum heilshugar saman inn í þetta mál að tefla henni fram. Það er alveg rétt að það voru ekki allir jafn ánægðir með þessa hugmynd.“ Eyþór viðurkennir að málið hafi verið erfitt að eiga við. „Þetta verður alltaf léttara og léttara, þetta var erfiðast fyrst. Þetta er auðvitað tilfinningamál hjá bæjarbúum þessi klofningur fyrir átta árum. Núna þurfum við bara að hugsa til framtíðar, vera bjartsýn og ekki festast í fortíðinni.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vestmannaeyjar Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira