„Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. apríl 2026 19:50 Kjötborgarbræður hafa staðið vaktina um áratugaskeið. vísir/Valli Fastagestur hjá versluninni Kjötborg segir það vera eins og að missa vini sína nú þegar liggur fyrir að versluninni verður lokað seinna á árinu, slík sé sorgin. Kaupmennirnir á horninu segjast ætla kveðja með stæl.
Ein rótgrónasta verslun borgarinnar var skráð á sölu í gær og því kominn tími til að kveðja kaupmennina á horninu. Bræðurnir sem hafa staðið vaktina þar um áratugaskeið segjast ætla fagna 70 ára afmæli verslunarinnar seinna í ár. Verslunin var stofnuð á sjötta áratugnum í smáíbúðahverfinu og færði sig svo að Ásvallagötu árið 1981. „Bróðir minn er fjarverandi eins og er. Hann fékk blóðtappa í nára og er á spítala. Hann heitir Gunnar Jónasson, við erum fjölskyldufyrirtæki,“ sagði Kristján Jónasson, kaupmaður í Kjötborg. Þið eruð búnir að vera hérna í mörg ár? „Já, ég byrjaði hér nítján ára með foreldrum mínum árið 1981. “ Verslunin er rekin af þeim bræðrum og eru þeir einstaklega vel liðnir af íbúum á svæðinu og þó víðar væri leitað. Hvernig líður þér við þessi tímamót, að það sé búið að setja húsið á sölu? „Það er náttúrulega alltaf mjög skrítið en það er aldrei rétti tíminn. Hvort sem það er þremur árum áður þegar það voru miklir erfiðleikar eða núna. Þetta er þungur rekstur og maður skilur það að það hefur orðið stórmarkaðshyggja líka. Það er betra verð í stórum búðum. Fólk er kannski með börn og það er töluvert ódýrara að versla í stórum búðum, maður skilur það,“ segir hann sem hefur áhyggjur af því að menning í kringum kaupmanninn á horninu muni endanlega lognast út af á næstu árum. Bræðurnir stefna á að loka með stæl. „Við ætlum að reyna að gera þetta með smá flottheitum. Reyna að enda með sumarhátíð eða einhverju eins og við gerðum í gamla daga. Það halda allir að við séum að fara að loka á morgun eða eitthvað en það er nú ekki alveg strax. Ég er ekkert að hætta fyrr en eftir nokkra mánuði,“ segir hann og reiknar með fögnuði með haustinu þegar Kjötborg verður 70 ára. „Þetta verður söknuður og fögnuður. Það er mikil vinna að vera með svona búð. Fólk verður að skilja það. Við erum ekki að hætta í dag eða á morgun, svo fólk slaki aðeins á. Það eru margir sem halda að ég muni skella í lás í vikunni. Vonandi verður búð hérna áfram.“ Viðskiptavinir lögðu leið sína í verslunina í dag við þessi tímamót. Það hryggir ýmsa að sjá á eftir versluninni. Hefurðu verslað mikið við Kjötborg? „Já svona nánast daglega. Það er yndislegt að eiga hér kaupmann á horninu. Þeir bræður, hver öðrum yndislegri,“ sagði Kristinn Schram, íbúi skammt frá Kjötborg. „Þetta er bara eins og að missa vini sína. Þetta er bara mikil sorg. Hér kynnist maður fólki og hér bjarga þeir öllu sem bjarga þarf í sambandi við mat og annað. Ef maður er veikur hafa þeir komið með matinn til manns,“ sagði Anna Margrét Tryggvadóttir, sem hefur stundað viðskipti við verslunina í tólf ár. „Þetta verður erfitt. Þetta er gamli tíminn sem er að hverfa. Ætli þetta séu ekki síðustu kaupmennirnir á horninu. Þetta eru fæddir kaupmenn og hafa verið alla tíð. Ég vil þakka þeim fyrir alla þessa þjónustu sem þeir hafa veitt okkur, bæði mér og fólki í hverfinu. Þeir hafa komið með ýmislegt þegar það eru veikindi eða þegar maður kemst ekki út vegna veðurs.“
Matvöruverslun Verslun Reykjavík Hús og heimili Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Vara við nálum í hrekkjavökunammi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Fleiri fréttir Feðgar séu í haldi í tengslum við málið þar sem maður lést Vara við nálum í hrekkjavökunammi „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira