„Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2026 21:15 Jordan Semple lék vel í kvöld og skoraði sautján stig og tók níu fráköst. vísir/guðmundur Jordan Semple sagði að Grindvíkingar hefðu loksins sýnt sínar bestu hliðar í úrslitakeppninni þegar þeir unnu Valsmenn, 93-67, í kvöld. Grindavík er 2-1 yfir í einvígi liðanna í undanúrslitum Bónus deildar karla. „
Við héldum bara áfram að berjast og loksins small þetta saman. Við hittum úr nokkrum skotum og náðum tíu, fimmtán og svo tuttugu stiga forskoti,“ sagði Semple í samtali við Andra Má Eggertsson eftir leikinn. Grindvíkingar byrjuðu leikinn af krafti og skoruðu fyrstu sex stig hans. „Við vorum tilbúnir, vildum byrja mjög vel og breyta ýmsu, vera ákveðnari og það skilaði sér.“ Semple segir að Grindvíkingar hafi verið svekktir eftir síðasta leik sem þeir töpuðu, 79-72. „Þeir eru með gott lið. Það er ástæða fyrir því að þeir eru í undanúrslitum. Þetta var jafn leikur og mér fannst vörnin bara þurfa að vera betri. Þeir skoruðu 67 stig. Við tökum því,“ sagði Semple. Eftir að Igor Maric minnkaði muninn í 68-60 tóku Grindvíkingar leikhlé og eftir það skoruðu þeir fjórtán stig í röð án þess að Valsmenn næðu að svara fyrir sig. „Við höfum beðið eftir því að komast á skrið alla úrslitakeppnina og við gerðum það loks í þessum leik. Allir lögðu sig mikið fram og liðið náði vel saman,“ sagði Semple sem var mátulega sáttur með eigin frammistöðu í kvöld. „Hún var ágæt. Ég klikkaði á nokkrum skotum í byrjun. Þeir þétta teiginn og við setjum allir boltann út og verðum að setja þessi skot niður fullir sjálfstrausts,“ sagði Semple að endingu.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Valur Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira