Körfubolti

„Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valsmennirnir hans Finns Freys Stefánssonar verða að vinna Grindvíkinga á mánudaginn til að forðast snemmbúið sumarfrí.
Valsmennirnir hans Finns Freys Stefánssonar verða að vinna Grindvíkinga á mánudaginn til að forðast snemmbúið sumarfrí. vísir/guðmundur

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sagði að botninn hefði dottið úr leik hans manna undir lokin gegn Grindavík. Hann vill sjá sína lykilmenn spila betur í fjórða leiknum á mánudaginn en þeir gerðu í kvöld.

Grindavík vann þriðja leik liðanna í kvöld, 93-67, eftir að hafa verið átta stigum yfir í hálfleik, 48-40.

„Þetta fjaraði út en mér fannst Grindavík bara betri, kröftugri og spiluðu heilt yfir miklu betur en við,“ sagði Finnur við Andra Má Eggertsson eftir leikinn í HS Orku-höllinni í kvöld.

Finnur var ekki ósáttur við stöðuna þegar liðin gengu til búningsherbergja eftir fyrri hálfleikinn. En honum fannst seinni hálfleikurinn ekki góður hjá Val. 

„Mér fannst við vera í fínum málum í hálfleik miðað við að við vorum að hitta illa og tapa boltanum. Það var ekkert í leiknum sem gaf það til kynna að ég væri ósáttur, fyrir utan að við fengum á okkur 48 stig og mikið af auðveldum körfum,“ sagði Finnur. 

„Byrjunin á seinni hálfleik var slæm. Við skoruðum lítið í byrjun 3. leikhluta, vorum með mikið af töpuðum boltum og vorum of langt frá okkar besta.“

Igor Maric minnkaði muninn í átta stig, 68-60, í 4. leikhluta en þá setti Grindavík í fluggírinn og skoraði fjórtán stig í röð.

„[Jeremy] Pargo skorar tvær körfur í röð, við töpuðum boltanum, munurinn varð svolítið mikill og við misstum hausinn,“ sagði Finnur.

Callum Lawson og Keyshawn Woods fundu sig ekki í leiknum í kvöld og skoruðu aðeins ellefu stig samtals.

„Þeir voru hvorugir nógu góðir í dag. Auðvitað gerðu þeir vel í að þétta meira og spiluðu góða vörn en þetta voru mikið af fínum færum. Við þurfum meira frá þeim en ég ætla ekkert að hengja þetta bara á þá. Við þurfum heilt yfir að spila betri körfuboltaleik en við gerðum í dag,“ sagði Finnur.

Valsmenn verða að vinna Grindvíkinga á mánudaginn kemur, annars er þátttöku þeirra á þessu tímabili lokið.

„Það er nú kosturinn við þessa blessuðu íþrótt að það skiptir ekki máli hvort þú tapar með einu stigi eða tuttugu. Þegar sex mínútur voru eftir vorum við búnir að koma þessu í leik en fórum illa að ráði okkar. Við þurfum bara að skoða okkar mál, fínpússa og finna hvað við þurfum að gera betur,“ sagði Finnur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×