Körfubolti

„Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hulda María Agnarsdóttir hefur verið í stóru hlutverki í liði Njarðvíkur undanfarin ár.
Hulda María Agnarsdóttir hefur verið í stóru hlutverki í liði Njarðvíkur undanfarin ár. sýn sport

Þegar Hulda María Agnarsdóttir var nýorðin sautján ára setti hún niður risastóra þriggja stiga körfu á ögurstundu í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Fjallað er um körfuna hennar Huldu í tólfta þætti Augnablikanna, „Draumaþristur á Eurovision-kvöldi.“

Haukar og Njarðvík mættust í úrslitum Bónus deildar kvenna í fyrra. Haukar unnu fyrstu tvo leikina en Njarðvíkingar næstu tvo og því réðust úrslit einvígisins í oddaleik í Ólafssal í Hafnarfirði.

Oddaleikurinn var ekki eini stórviðburðurinn þetta kvöldið því strákarnir í Væb kepptu fyrir Íslands hönd í undankeppni Eurovision á sama tíma. Oddaleikurinn gaf Eurovision þó lítið eftir enda var hann eftirminnilegur í meira lagi.

Þóra Kristín Jónsdóttir kom Haukum sex stigum yfir, 79-73, þegar hálf mínúta var eftir. Brittany Dinkins svaraði strax með annarri þriggja stiga körfu. Haukum tókst ekki að skora í lokasókn sinni og Njarðvíkingar fengu boltann.

Eftir að Þóra braut á Brittany tóku gestirnir innkast. Brittany fékk boltann og kom honum á Huldu sem var fyrir utan þriggja stiga línuna, beint fyrir framan körfuna. Hún horfði aðeins í kringum sig en lét svo vaða og boltinn söng í netinu og staðan orðin jöfn, 79-79.

„Hún [Brittany] fær boltann úr innkastinu og gefur á mig. Ég varð bara að skjóta boltanum. Það var alltof lítið eftir. Ég var búin að vera að fíla mig fyrir utan þriggja stiga línuna allt einvígið og þetta sýnir líka traustið í liðinu; að hún treysti mér fyrir að taka þetta skot,“ sagði Hulda er hún rifjaði þristinn fræga í oddaleiknum gegn Haukum fyrir ári upp.

Klippa: Augnablikin - Draumaþristur á Eurovision-kvöldi

Heiðar Snær Magnússon lýsti leiknum á Sýn Sport ásamt Berglindi Gunnarsdóttur. Hann segir þetta eftirminnilegasta leik sem hann hefur nokkru sinni lýst.

„Að sjá Huldu fagna þessu, manni leið ekkert eins og hún væri sautján ára heldur að hún væri þaulreyndur leikmaður sem hefur sett svona skot áður. Hún fagnaði þessu eins og töffari,“ sagði Heiðar.

„Ég hugsaði ekki mikið þegar ég skaut skotinu en þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður. Hann fór ofan í. Ég vissi eiginlega ekki hvernig ég átti að haga mér en þetta var geggjað,“ sagði Hulda.

Framlengingin var álíka spennandi og lok venjulegs leiktíma en þegar uppi var staðið höfðu Haukar betur, 92-91, og urðu Íslandsmeistarar.

Brot úr „Draumaþrist á Eurovision-kvöldi“, tólfta þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þáttinn í heild sinni má nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.


Tengdar fréttir

Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga

Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum.

Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður

Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×