„Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Lovísa Arnardóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 5. maí 2026 21:14 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Vilhelm Forstjóri Icelandair telur ekki líkur á því að áhafnarskortur sem leiddi til þess að flugferð til Kaupmannahafnar var aflýst í dag tengist kjaraviðræðum við flugmenn og flugvirkja. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir engar aðgerðir í gangi á vegum félagsins. Formaður Flugfreyjufélags Íslands tekur í sama streng.
Fjallað var um það á RÚV fyrr í dag að flugi Icelandair hefði verið aflýst með stuttum fyrirvara vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn fyrir flugið. Icelandair á í kjaraviðræðum við FÍA og Flugvirkjafélag Íslands og fór fyrsti fundur fram hjá ríkissáttasemjara í dag. Næsti fundur er boðaður á fimmtudag en deilunni var um miðjan marsmánuð vísað til sáttasemjara. Kjarasamningar Icelandair við flugmenn og flugþjóna runnu út 30. september. „Ég veit að þetta tiltekna flug féll niður því það vantaði flugmenn á það,“ segir Jón Þór Þorvaldsson hjá FÍA í samtali við Vísi. Hann viti ekki hvaðan sú hugmynd RÚV komi að þessi aflýsing tengist kjaraviðræðunum. „Það eru engar aðgerðir í gangi á vegum FÍA,“ segir hann. „Þetta er ekkert tengt samningum hjá Flugfreyjunum. Flugmenn og flugvirkjar eru komnir til [sáttasemjara] svo mér þykir líklegt að það sé verið að vísa í það en ég get allavega sagt að þetta er ekki frá okkur komið,“ segir Berglind Kristófersdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands. Forstjórinn segir óskynsamlegt að valda félaginu tjóni „Við trúum því ekki að þetta tengist með einhverjum hætti vegna þess að það er svo óskynsamlegt að við starfsfólkið séum að valda fyrirtækinu tjóni og okkar viðskiptavinum óþægindum, ekki síst á þessum tímum þegar aðstæður eru mjög krefjandi í flugrekstri út af tvöföldun á eldsneytisverði,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri í samtali við fréttastofu. „Þannig að við teljum að svo sé ekki allavega. Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri, en við teljum engar líkur á því að þetta séu einhver samantekin ráð eða eitthvað þess háttar. Þetta hlýtur að vera eitthvað tilfallandi.“ Viðræður við flugþjóna ganga betur Aflýsingar vegna áhafnaskorts eru mjög sjaldgæfar hjá Icelandair, að sögn Boga. Farþegum sem áttu sæti með umræddu flugi hafi verið komið á leiðarenda með öðrum leiðum. „En auðvitað lendir þá einhver kostnaður á félaginu við það og óþægindi fyrir viðkomandi farþega að fara ekki á þeim tíma sem þeir ætluðu.“ Þetta atvik komi ekki til með að hafa nein tilfallandi áhrif á aðrar flugferðir Icelandair. Flugfélagið á meðal annars í kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands líkt og fyrr segir. Bogi fullyrðir að það samtal sé á betri stað en hjá flugmönnum og flugvirkjum. „Þær viðræður eru á ágætisstað meðan það gengur hægar í hinum. En við vonumst til þess að það fari að koma hreyfing á þær líka.“ Berglind hjá Flugfreyjufélagi Íslands tekur undir að það eigi í ágætis samtali við fulltrúa flugfélagsins.
Fréttir af flugi Kjaramál Icelandair Vinnumarkaður Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira