Körfubolti

Oddaleikirnir á sitt hvorri rásinni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Leikur Stjörnunnar við Tindastól er klukkan 18:15 á Sýn Sport Ísland 2. Leikur Vals við Grindavík er í kjölfarið klukkan 20:15 á Sýn Sport Ísland.
Leikur Stjörnunnar við Tindastól er klukkan 18:15 á Sýn Sport Ísland 2. Leikur Vals við Grindavík er í kjölfarið klukkan 20:15 á Sýn Sport Ísland. Samsett/Vísir

Eitt stærsta íþróttakvöld ársins er fram undan. Oddaleikirnir í undanúrslitum karla í körfubolta verða sýndir hvor á sinni rás Sýnar Sport í kvöld en fjölmenn teymi eru komin saman bæði á Sauðárkróki og í Grindavík. 

Mikil spenna er í Bónus deild karla þar sem oddaleikir munu útkljá í kvöld hvaða tvö lið keppast um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrri oddaleikurinn fer fram á Sauðárkróki þar sem Tindastóll og Stjarnan eigast við.

Stjarnan vann fyrstu tvo leiki liðanna en Tindastóll hefur unnið leikina tvo síðan. Leikur þeirra liða hefst klukkan 18.15 en upphitun hefst á Sýn Sport Ísland 2 klukkan 17.45.

Stefán Árni Pálsson og hans menn í Körfuboltakvöldi verða í Grindavík í kvöld og hefja þar upphitun fyrir leikinn norðan heiða hálftíma fyrir leik, auk þess að fara yfir gang mála í hálfleik. Líkt og áður segir verður leikurinn fyrir norðan á Sýn Sport Ísland 2. Ef ske kynni að leikurinn verði framlengdur er hann ekki á sömu rás og síðari oddaleikurinn.

Sá er milli Grindavíkur og Vals, en þar er staðan einnig 2-2 í einvíginu. Sá leikur hefst klukkan 20.15 og verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland. Upphitun fyrir þann leik hefst á þeirri rás hálftíma fyrir leik, klukkan 19.45, en þá má vel vera að leikurinn fyrir norðan verði enn í gangi.

Stefnt er að því að sjá megi viðbrögð leikmanna og þjálfara að norðan á meðan upphitun fyrir leik Grindavíkur og Vals stendur.

Upphitun fyrir leik Tindastóls og Stjörnunnar hefst klukkan 17.45 á Sýn Sport Ísland 2 og leikurinn sjálfur klukkan 18.15.

Upphitun fyrir leik Grindavíkur og Vals hefst klukkan 19.45 á Sýn Sport Ísland og leikurinn sjálfur klukkan 20.15.

Meistaradeildin og Besta deild kvenna

Margt fleira er um að vera á rásum Sýnar Sports í kvöld og má þar helst nefna stórleik Bayern Munchen og Paris Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum eftir ótrúlegan 5-4 sigur PSG í fyrri leik liðanna í París í síðustu viku.

Upphitun fyrir þann leik hefst klukkan 18.30 á Sýn Sport og Leikurinn sjálfur klukkan 19.00 á sömu rás.

Einnig eru fjórir leikir á dagskrá í Bestu deild kvenna sem rúllar frá klukkan 16.30 til 21.15. Fyrsti leikurinn er að Hlíðarenda þar sem Valur og ÍBV eigast við á Sýn Sport Ísland 5 frá klukkan 16.20.

Annar leikurinn er á Akureyri milli Þórs/KA og Stjörnunnar á Sýn Sport Ísland klukkan 16.50.

Klukkan 19.15 eru þá tveir leikir sem klára umferðina. FH mætir Grindavík/Njarðvík á Sýn Sport Ísland 4 og Víkingur tekst á við Breiðablik á Sýn Sport Ísland 3.

Dagskrá kvöldsins í heild er eftirfarandi:

Bónus deild karla:

17.45 Tindastóll – Stjarnan (Sýn Sport Ísland 2)

19.45 Grindavík – Valur (Sýn Sport Ísland)

22.10 Bónus Körfuboltakvöld (Sýn Sport Ísland)

Besta deild kvenna:

16.20 Valur – ÍBV (Sýn Sport Ísland 5)

16.50 Þór/KA – Stjarnan (Sýn Sport Ísland)

19.05 FH – Grindavík/Njarðvík (Sýn Sport Ísland 4)

19.05 Víkingur R. – Breiðablik (Sýn Sport Ísland 3)

Meistaradeild Evrópu:

18.30 Upphitun (Sýn Sport)

18.50 Bayern Munchen – PSG (Sýn Sport)

21.00 Meistaradeildarmörkin (Sýn Sport)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×