Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen skrifar 6. maí 2026 11:33 Niðurskurður í menntakerfinu. Kennarar „alltaf í fríi“. Afnám áminningarskyldu. Verkalýðsfélög sögð tímaskekkja. Umræður um hvað megi kenna og hvað ekki. Nemendur sagðir ekki kunna að lesa.Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu... Þetta eru ekki einangruð ummæli, þetta eru fyrirsagnir og umræður síðustu vikna ogmánaða í fjölmiðlum. Orðræðan um mennta- og skólamál hefur á undanförnum misserum tekið á sig sífellt neikvæðari mynd. Þetta er orðræða sem grefur undan trausti, veikir faglega umræðu og þjónar hvorki nemendum, kennurum né samfélaginu í heild. Það sem vekur sérstaka athygli er að þessi ummæli koma ekki eingöngu frá jaðrinum. Þau heyrast frá hásettum embættismönnum, ráðherrum og stjórnarandstöðu, auk annarra hagsmunaaðila. Þegar slíkir aðilar stilla upp einfaldri og niðurrífandi mynd af skólastarfi hefur það raunveruleg áhrif bæði á ímynd kennarastéttarinnar og traust til menntakerfisins. Að sjálfsögðu á fólk rétt á skoðunum. Að sjálfsögðu eigum við sem störfum í skólakerfinu að taka þátt í opnu og gagnrýnu samtali um þróun þess. En samtal verður að byggjast á gagnkvæmri virðingu og raunverulegum vilja til að skilja. Það getur ekki verið einhliða, þar sem talað er um menntakerfið en ekki við fólk sem þar starfar. Þegar við horfum til framtíðar verður þessi orðræða enn alvarlegri. Hún snýst ekki bara um ímynd kennara í dag heldur um hverjir vilja verða kennarar á morgun. Kennari? Nei takk! Gögn frá OECD sýna skýrt að áhugi ungmenna á kennarastarfinu er að minnka. Hlutfall 15 ára stúlkna sem sjá sig fyrir sér sem kennara hefur lækkað úr 11% í 8% á síðustu tveimur áratugum. Þó að munur milli kynja hafi minnkað er ástæðan ekki sú að fleiri drengir sækist eftir starfinu, heldur að færri stúlkur gera það. Þetta er ekki tilviljun Ungmenni fylgjast með. Þau hlusta á umræðuna í samfélaginu og sjá hvaða störf njóta virðingar og hvaða störf eru dregin niður. Þegar kennarastarfið er sífellt sett fram sem auðvelt, vanmetið eða jafnvel vandamál í sjálfu sér, þá hefur það áhrif á hvernig 15 ára ungmenni horfa á framtíð sína. Þau heyra að ákveðin störf, til dæmis á sviði viðskipta, skili hærri launum og meiri möguleikum, á meðan kennsla er oft sett fram sem starf sem krefst mikillar ábyrgðar og vinnu án þess að umbunin endurspegli það. Á sama tíma sjá þau að aðrar leiðir til velgengni virðast hraðari og sýnilegri. Þá bætist við sú einföldun að gervigreind eigi að „leysa nám“ eða jafnvel taka yfir hlutverk kennarans, sem dregur enn frekar úr skynjuðu virði fagstéttarinnar. Ungt fólk er því ekki endilega að snúa baki við kennslu sem slíkri. Það er að lesa þau skilaboð sem samfélagið sendir og bregðast við þeim. Afleiðingarnar eru augljósar Ef færri vilja verða kennarar veikist kerfið til lengri tíma. Ekki vegna skorts á vilja innan menntakerfisins, heldur vegna þess að samfélagið hefur smám saman grafið undan aðdráttarafli og trausti til starfsins. Það er sérstaklega athyglisvert að aðeins eitt land, Japan, sýnir jafnvægi þar sem bæði kyn sjá sig í kennslu í svipuðum mæli og það hefur haldist stöðugt í yfir tvo áratugi. Það bendir til þess að þetta sé ekki óhjákvæmilegur veruleiki, heldur afleiðing af samfélagslegum skilaboðum, sýn, menningu og mati á starfinu. Spurningin sem við þurfum því að spyrja er einföld: Hvaða skilaboð viljum við senda til næstu kynslóðar? Viljum við að þau sjái kennarastarfið sem mikilvægt, áhugavert, vel launað og virðingarvert hlutverk í samfélaginu eða sem starf sem er stöðugt fyrir gagnrýni og vanmetið? Samfélagssátt Ef svo er þurfum við sem samfélag að fara í átak. Átak sem felst í því að snúa orðræðunni við. Átak sem snýst um að skapa nýja samfélagssátt um menntun. Við þurfum að tala meira um það sem við erum sammála um og skiptir raunverulega máli, sem dæmi hópastærðir, inngildandi menntun, faglegt frelsi kennara og hvernig við byggjum skólasamfélag þar sem allir fá að blómstra og finna fyrir öryggi. Við þurfum að tala bæði bóknám og iðn- og verkgreinar upp. Hrósum börnum og ungmennum þegar þau velja sér leið í lífinu, hvaða leið sem það mætti vera. Og umfram allt þurfum við að vera sammála um að menntakerfið er ekki kostnaðarliður sem hægt er að skera niður endalaust. Það er ein mikilvægasta fjárfesting samfélagsins til framtíðar. Við þurfum að heyra ungt fólk segja „Já, ég ætla að verða kennari!“ Höfundur er framhaldsskólakennari og formaður skólamálanefndar Félags framhaldsskólakennara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar