Körfubolti

Röð á­falla en trúin til staðar: „Ekkert pláss fyrir bull“

Aron Guðmundsson skrifar
Baldur Þór, þjálfari Stjörnunnar, mætir með sitt lið í Síkið í oddaleik gegn Tindastól í undanúrslitum Bónus deildarinnar í kvöld. 
Baldur Þór, þjálfari Stjörnunnar, mætir með sitt lið í Síkið í oddaleik gegn Tindastól í undanúrslitum Bónus deildarinnar í kvöld.  Vísir / Anton Brink

Baldur Þór Ragnars­son, þjálfari ríkjandi Ís­lands­meistara Stjörnunar, segir trúnna enn til staðar innan liðsins gagn­vart því að hafa betur gegn Tindastól í odda­leik í undanúr­slitum Bónus deildarinnar í kvöld þrátt fyrir að hvert áfallið á fætur öðru hafi dunið á liðinu.

„Bara spenntur fyrir leiknum,“ segir Baldur í samtali við Vísi. „Eins og odda­leikir eru þá er þetta náttúru­lega rosa krefjandi. Maður spyr sig oft þegar maður er í þessari úr­slita­keppni, hvað maður sé eigin­lega að gera? En á sama tíma þarf maður að minna sig á að þetta er gaman og forréttindi að taka þátt í þessu.“

Stjörnumenn urðu hins vegar fyrir enn einu áfallinu í aðdraganda oddaleiksins þegar greint var frá því að Bandaríkjamaðurinn Seth LeDay yrði ekki meira með á tímabilinu eftir að hafa slitið liðbönd í leik fjögur gegn Tindastól. 

LeDay bætist því á meiðslalistann í Garðabænum ásamt landsliðsmönnunum Ægi Þór Steinarssyni og Orra Gunnarssyni.

Hvaða áhrif hefur fjarvera Seth Leday?

„Náttúru­lega bara ekki góð áhrif. Það segir sig sjálft. Maður getur náttúru­lega bara verið lítill í sér og kvartað yfir þessu, að heimurinn sé á móti manni og allt það. En maður verður bara að ýta þessum hugsunum frá sér. Mann­skapurinn stígur upp. Það eru allir sem stíga upp, maður kemur í manns stað. Sama gamla tuggan. Það er bara að undir­búa leikinn, leggja sitt besta að mörkum og sjá hvar þú endar.“

„Helvíti þröng staða“

Það eru fáir sem gefa ykkur mögu­leika í leik kvöldsins án Seth LeDay, Ægis Þórs Steinars­sonar og Orra Gunnars­sonar. Er mögu­leikinn til staðar að þið vinnið Tindastól í kvöld og tryggið ykkur sæti í úr­slita­ein­víginu?

„Já það er alltaf mögu­leiki. En auðvitað er þetta orðin helvíti þröng staða. Mjög krefjandi. Það þurfa allir að eiga sinn besta leik. Það er bara svo­leiðis og ekkert pláss fyrir bull. Menn þurfa að spila yfir getu í ein­hverjum stöðum og það þarf að vera stemning, sjálf­s­traust og ákveðni. Ef þú keppir af fullum krafti, nærð að over­per­forma þá er allt mögu­legt í þessari íþrótt.“

Ægir Þór var sárþjáður eftir að hafa olnbogabrotnað í átta liða úrslitunum gegn KR á dögunumVísir/Anton

Ekki lent í þessu áður

En bara í ljósi þessara áfalla sem hafa dunið á ykkur. Hefur þú þurft að staldra við og hugsa hversu óheppnir þið getið eigin­lega verið?

„Já auðvitað staldrar maður við og spyr sig hvað sé eigin­lega að frétta með þetta. Ég man nú ekki eftir því að hafa þjálfað lið þar sem að svona margir leik­menn hafa lent í meiðslum og verið frá út tíma­bilið. Að lenda í þremur sama tíma­bilið er nú bara al­gjör­lega eins­dæmi. Auðvitað er heppnin ekki með okkur í þessu en þetta eru íþróttir. Eitt af því er að reyna fara í gegnum hindranir, sýna ekki upp­gjöf, keppa harðar þegar að á móti blæs. Það er eitt af því sem íþróttir geta kennt þér. Eitt af því sem maður þarf að til­einka sér ef þú ætlar að keppa í þessu.“

Jákvæð tíðindi bárust þó einnig í aðdraganda leiksins. Serbinn Luka Gasic hefur verið að glíma við magapest en er klár í slaginn í Síkinu í kvöld með Stjörnunni. 

Luka Gasic í leik með StjörnunniVísir/Ernir Eyjólfsson

Trúin enn til staðar

Stjarnan hefur að ein­hverju leiti af­sannað hrak­spár sem voru á lofti fyrir ein­vígið gegn Tindastól eftir að liðið hafði misst Ægi Þór og Orra í meiðsli. Með nýjasta áfallinu spyr maður sig hvort trúin á verk­efninu sé enn til staðar.

„Það er klár­lega enn þá trú í liðinu. Við erum enn með fullt af gæða­leik­mönnum sem geta spila á hæsta gæða­stigi. Við höfum trú á verk­efninu og ætlum að leggja allt í þetta.“

Oddaleikur Tindastóls og Stjörnunnar hefst klukkan korter yfir sex í Síkinu á Sauðárkróki og verður þar leikið til þrautar um sæti í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×