Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Samúel Karl Ólason skrifar 7. maí 2026 13:52 Rúmlega 140 manns eru eftir um borð í MV Hondius. Enginn um borð hefur sýnt einkenni. AP/Misper Apawu Tugir farþega skemmtiferðaskipsins MV Hondius eru sagðir hafa farið frá borði á St. Helenu í Suður-Atlantshafi þó nokkrum dögum eftir að maður dó þar um borð. Sá hafði smitast af hantaveirunni en eiginkona hans dó skömmu síðar. Nú er mikið kapp lagt á að framkvæma smitrakningu í tengslum við þetta fólk.
Vitað er til þess að fyrsta fólkið sem sýndi einkenni heimsótti staði þar sem talið er að finna megi rottur sem geta borið hantaveiruna. Enn er óljóst hve margir fóru frá borði á St. Helenu en hollenska fyrirtækið sem gerir skemmtiferðaskipið út segir þá 29. Yfirvöld í Hollandi hafa sagt um fjörutíu, samkvæmt AP fréttaveitunni. Ekki varð ljóst að hantaveira hefði verið í dreifingu um borð í skipinu fyrr en 2. maí. Þann dag dó ein kona til viðbótar um borð í skipinu en lík hennar er enn þar. Alls hafa þrír dáið vegna veirunnar og er talið að að minnsta kosti átta til viðbótar hafi smitast. Skipinu er nú siglt í átt að Kanaríeyjum, þar sem stendur til að flytja fólkið frá borði og til heimaríkja sinna. Sjá einnig: Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Rúmlega 140 manns eru um borð í skipinu, bæði farþegar og áhöfn. Þrír farþegar og læknir voru fluttir af skipinu í gær. Tedros Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sagði á blaðamannafundi í dag að enginn sem væri enn sýndi einkenni. Hann sagði þó að meðgöngutími veirunnar væri allt að sex vikur. Það er að segja að allt að sex vikur geta liðið frá því fólk smitast og þar til það byrjar að sýna einkenni. LIVE | @WHO media briefing on #hantavirus https://t.co/8Q5Pnxafei— Tedros Adhanom Ghebreyesus (@DrTedros) May 7, 2026 Búið er að hafa samband við alla sem fóru frá borði í á St. Helenu en það var þann 24. apríl síðastliðinn. Samkvæmt frétt Reuters er fólkið frá tólf ríkjum og þar á meðal sjö frá Bretlandi og sex frá Bandaríkjunum. Ein af þeim þremur sem dóu var kona frá Hollandi, áðurnefnd kona mannsins sem dó fyrst, en forsvarsmenn flugfélagsins KLM sögðu frá því í gærkvöldi að henni hefði verið vísað úr flugvél á þeirra vegum í Suður-Afríku þann 25. apríl vegna heilsu hennar. Hún dó áður en hún komst til Hollands en flugfreyja úr þessari flugvél hefur verið lögð inn á sjúkrahús vegna veikinda og gruns um að hún hafi smitast af hantaveirunni, samkvæmt fréttum hollenskra miðla. Hantaveira smitast yfirleitt í menn sem anda að sér gufum frá hægðum smitaðra nagdýra. Það afbrigði veirunnar sem fólkið hefur smitast af smitast sjaldan manna á milli og segja sérfræðingar að mikla nánd þurfi til. Á blaðamannafundi WHO í dag kom fram að vitað sé til þess að hjónin sem dóu fyrst hafi heimsótt staði í Ástralíu þar sem vitað er að finna megi tegundir rotta sem geti borið hantaveiruna. Unnið er með yfirvöldum þar að því að kortleggja ferðir hjónanna betur en þau ferðuðust einnig til Síle og Úrúgvæ. Órói á Kanaríeyjum Íbúum á Kanaríeyjum er mörgum ekki rótt vegna þess að verið sé að sigla skipinu þangað. Margir eru sagðir óttast útbreiðslu veirunnar þar. Ghebreyesus sagði á blaðamannafundi í dag að fólki á Kanaríeyjum stafaði mjög lítil hætta af veirunni. Fernando Clavijo, hæst setti embættismaður Kanaríeyja, hefur lýst því yfir að hann sé andvígur því að skipinu verði siglt þangað. Hann er pólitískur andstæðingur Pedros Sanchez, forsætisráðherra Spánar.
Holland Kanaríeyjar Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira