„Við erum bara að mótmæla“ Smári Jökull Jónsson skrifar 7. maí 2026 19:32 Freyja Louise og Úlfur Jósep eru ekki sátt með að það eigi að fjarlægja kofann. Vísir/Smári Jökull Reykjavíkurborg vill að kofi sem börn hafa byggt í sameiningu við Lynghaga í Reykjavík verði fjarlægður þar sem hann er ekki öryggisvottaður. Börnin eru ekki ánægð og segja nær alla í hverfinu hafa skrifað nafn sitt við undirskriftalista þar sem áætlunum borgarinnar er mótmælt.
Kofinn eða listagallerí eins og krakkarnir kalla hann er staðsettur á svæði sem tilheyrir borginni. Þar hafa krakkarnir unað hag sínum vel. „Grunnurinn kom fyrir fimm árum og efri hæðin aðeins seinn, kannski fyrir tveimur árum,“ segir Simon Josha Flender íbúi í hverfinu og foreldri barna í hverfinu. Miðinn sem Reykjavíkurborg hengdi á kofann.Aðsend Þann 29. apríl var búið að hengja upp miða á kofanum þar sem Reykjavíkurborg tilkynnti að hann yrði fjarlægður viku síðar af öryggisástæðum. Fallhætta var meðal annars tilgreind í því samhengi og krakkarnir settu í kjölfari upp lista yfir verkefni sem þau vilja klára til að gera hann öruggan. „Þau eru afar ósátt“ Foreldrar barnanna hafa verið í samskiptum við Reykjavíkurborg í kjölfarið. „Við erum í sambandi við þau og fengum núna frest, fjórar vikur, til að finna lausn. Færa kofann eða taka niður. Það sem okkur langar helst að gera væri að fá hann áfram hér á þessum stað sem er hlutlaust og það er engin umferð hér í kring,“ segir Simon. Kofinn er staðsettur á svæði sem tilheyrir Reykjavíkurborg.Vísir/Smári Jökull Útskýring borgarinnar hafi verið að öll leiktæki á grænum svæðum þurfi að vera öryggisvottuð. Hvernig tóku krakkarnir í þessar fréttir? „Þau eru afar ósátt við það og reyndar fullorðið fólk líka í hverfinu. Öllum þykir mjög vænt um þetta,“ bætir Simon við. Krakkarnir hafa útbúið skilti með ýmsum slagorðum og vilja að kofanum se´bjargað.Vísir/Smári Jökull Hann segir vandamálið kerfisbundið. „Einhver þarf að taka svona út og fylgja þessum reglum svo allir geti afskrifað sig frá ábyrgð. Smíðavellir eiga sér ríka sögu í Reykjavík og mér finnst sorglegt að það megi ekki hafa svona kofa hér.“ Leikurinn er vinsæll hjá krökkunum í hverfinu, leikskólakrakkar koma oft á morgnanna og eldri börnin þegar skóla lýkur. Í kofanum má sjá ýmis skilaboð frá börnunum.Aðsend „Þau skreppa rétt inn í kvöld og fara svo aftur út að smíða, mála og gera húsgögn,“ segir Símon. „Við erum alltaf að leita að leiðum til að fá krakkana til að leika úti í staðinn fyrir að vera inni og hanga í símum. „Eiginlega allir í götunni eru búnir að skrifa“ Krakkarnir vilja ekki sjá kofann fara. „Ekki gott, ég hef séð marga leika í þessum kofa og margir vilja ekki að þessi kofi fari burt,“ segir Úlfur Jósep sem finnst skemmtilegast að byggja og mála í kofanum. „Mér finnst ekki gott að þau séu að taka hann, hann er að verða fimm ára,“ bætir Freyja Louise við. Freyja Louise og Úlfur Jósep eru tvö af þeim sem vilja alls ekki að kofinn verði fjarlægður.Vísir/Smári Jökull Á veggi kofans er búið að skrifa ýmis skilaboð, meðal annars nöfn þeirra sem mótmæla. „Við erum bara að mótmæla, skrifa nöfnin,“ segir Freyja. Ert þú búinn að skrifa nafnið þitt á listann Úlfur? „Já, eiginlega allir sem eru hér í götunni eru búnir að skrifa.“ Eftir að Reykjavíkurborg tilkynnti að fjarlægja þurfti kofann útbjuggu börnin lista yfir það sem þau vilja gera til að bæta öryggið.Aðsend Hvað mynduð þið vilja að yrði gert? „Bara ekki taka hann niður, við erum ekki búin að klára hann.“ Vér mótmælum öll!Aðsend
Börn og uppeldi Reykjavík Umhverfismál Krakkar Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Sjá meira