Nær Spieth loksins að loka hringnum? Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. maí 2026 12:02 Jordan Spieth er á frábærum aldri og mun örugglega fá mörg tækifæri í viðbót til þess að vinna eina risamótið sem honum hefur ekki tekist að vinna. vísir/getty PGA-meistaramótið í golfi hefst á fimmtudag og margra augu verða á Jordan Spieth sem reynir enn og aftur að vinna mótið en það myndi setja hann í ansi fámennan hóp.
Aðeins sex kylfingar í sögunni hafa afrekað það að vinna öll fjögur risamótin. Spieth hefur fengið nokkur ár til þess að loka hringnum en án árangurs. Hinn 32 ára gamli Spieth skaust með ljóshraða fram á sjónarsviðið er hann vann Masters og US Open árið 2015. Þá aðeins 21 árs. Tveimur árum síðar stóð hann uppi sem sigurvegari á Opna breska og golfheimurinn var hans. Síðan þá hefur ekkert gengið hjá honum. Spieth hefur ekki unnið mót á PGA-mótaröðinni síðan 2022. Hann hefur ekki náð inn á topp tíu á tólf mótum á þessu keppnistímabili. Hann fór í aðgerð á úlnlið á síðasta ári og hefur nú náð fullri heilsu. Hann er að reyna við PGA-meistaramótið í tíunda sinn og er bjartsýnn. „Það væri ótrúlegt ef mér tækist að vinna mótið. Það eru svo fáir sem hafa afrekað að vinna öll fjögur risamótin. Ég hef verið að spila vel en ekki tekist að tengja allt saman. Ég er að spila gott golf og vonandi tekst mér að láta allt smella,“ sagði Spieth. PGA-meistaramótið verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.
Golf PGA-meistaramótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira