Ráðherra segir fáheyrðar tafir á umhverfismati Sundabrautar Kristján Már Unnarsson skrifar 12. maí 2026 22:10 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Sigurjón Ólason Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að fela lögmannsstofu að rannsaka hvað skýri nærri ársseinkun á umhverfismati Sundabrautar. Ráðherrann segir slíkar tafir fáheyrðar.
Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar en fyrir áramót vonaðist innviðaráðherrann til að unnt yrði að bjóða út Sundabrautina á næsta ári og að hún gæti jafnvel orðið tilbúin árið 2032. Þær tímaáætlanir virðast núna vera í óvissu. Myndin sýnir ásýnd mögulegrar þrjátíu metra hárrar brúar um Kleppsvík séð frá Gufuneshöfða.Efla verkfræðistofa Ráðherrann vill þó ekki gefa frá sér að markmiðin náist. „Já, við stefnum ótrauð á það,“ segir Eyjólfur. „Umhverfismatsskýrslan og umhverfismatið hefur tafist alveg gríðarlega. Ég hélt að þetta ætti að klárast síðasta vor,“ segir ráðherrann í sjónvarpsfrétt Sýnar: Hann hafnar því að stofnun innviðafélags þurfi að tefja verkefnið. Ráðherrann hyggst hins vegar fela lögmannsstofu að rannsaka hvað valdi töfum á umhverfismati en það er núna í meðförum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, eða HMS, sem Skipulagsstofnun rann nýlega inn í. Veglína Sundabrautar, samkvæmt umhverfismatsskýrslu. Við þverun Kleppsvíkur er boðið upp á tvo aðalvalkosti, jarðgöng eða hábrú.Grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson „Þetta er algjörlega fáheyrt að svona tafir séu á umhverfismati. Það er gerð matsáætlun þarna. Og það virðist ekki vera metið eftir þeirri áætlun heldur farið út um allar koppagrundir, - fundnar nýjar plöntur og svo fleira. Þetta er lögbundið mat með matsáætlun og það á að meta umhverfisáhrif framkvæmdarinnar samkvæmt þeirri matsáætlun. Það virðist ekki hafa verið gert, það virðist hafa verið farið út fyrir það mat,“ segir Eyjólfur. En stærsta spurningin er: Á að smíða brú yfir Kleppsvík eða grafa göng? Sundabrú yrði lengsta brú Íslands, nærri 1,2 kílómetra löng. Hér er hún sýnd sem hábrú. Efla -Hver tekur þá ákvörðun? „Ég tel að hún sé á mínu borði og vissulega kannski líka sveitarfélagsins, en skipulagsvaldið er þar. En þetta er fyrst og fremst ríkið sem er að byggja þennan veg. Og ég er með ábyrgð á þessum málaflokki.“ -Vegagerðin mælir eindregið með brú. Ertu sammála því mati? „Mér finnst það mjög áhugaverður kostur, ég verð að segja alveg eins og er. Brú, samkvæmt mínum upplýsingum, er ódýrari kostur. Og meiri notkun á brú,“ svarar innviðaráðherra en hér er ítarlegri lýsing á Sundabraut:
Sundabraut Vegagerð Skipulagsmál Samgöngumál Samgönguáætlun Umhverfismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Við gætum farið að aka Sundabraut eftir sjö ár Framkvæmdir við Sundabraut gætu hafist eftir tvö ár, gangi áform stjórnvalda eftir. Þeir sem vilja lýsa skoðun sinni hafa núna sex vikna frest, til 30. nóvember, til að koma áliti sínu á framfæri. 15. október 2025 22:00 Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Vegagerðin telur að markmið um bættar samgöngur fyrir alla ferðamáta með lagningu Sundabrautar náist að mestu með því að byggja brú yfir Kleppsvík, jarðgöng nái síður að uppfylla þau markmið, þau útiloki samgöngumöguleika hjólandi og gangandi. Í undirbúningi séu opnir kynningarfundir vegna væntanlegrar umhverfismatsskýrslu um brautina, sem von er á í samráðsgátt Skipulagsstofnunar í næstu viku. 9. október 2025 15:48 Sundabrú minnir á helsta kennileiti Norður-Noregs Sundabrú, sem Vegagerðin mælir með að verði reist yfir Kleppsvík, minnir um margt á Tromsøbrú, helsta kennileiti Tromsø, stærstu borgar Norður-Noregs. Brýrnar yrðu álíka langar og álíka háar, báðar steinsteyptar á súlum og ekki ósvipaðar útlits. 19. október 2025 07:37 Yfirlýsing um Sundabraut: „Má segja að framkvæmdin sé hafin þótt engin sjáist grafan“ Framkvæmdir við Sundabraut eiga að hefjast eftir fimm ár og brautin að vera tilbúin eftir tíu ár, samkvæmt yfirlýsingu sem samgönguráðherra og borgarstjóri undirrituðu á Vogabakka í Sundahöfn síðdegis. Leggja á brautina alla leið í einni samfelldri framkvæmd og efna til alþjóðlegrar hönnunarsamkeppni um útlit Sundabrúar, verði hún fyrir valinu. 6. júlí 2021 22:15 Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira
Við gætum farið að aka Sundabraut eftir sjö ár Framkvæmdir við Sundabraut gætu hafist eftir tvö ár, gangi áform stjórnvalda eftir. Þeir sem vilja lýsa skoðun sinni hafa núna sex vikna frest, til 30. nóvember, til að koma áliti sínu á framfæri. 15. október 2025 22:00
Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Vegagerðin telur að markmið um bættar samgöngur fyrir alla ferðamáta með lagningu Sundabrautar náist að mestu með því að byggja brú yfir Kleppsvík, jarðgöng nái síður að uppfylla þau markmið, þau útiloki samgöngumöguleika hjólandi og gangandi. Í undirbúningi séu opnir kynningarfundir vegna væntanlegrar umhverfismatsskýrslu um brautina, sem von er á í samráðsgátt Skipulagsstofnunar í næstu viku. 9. október 2025 15:48
Sundabrú minnir á helsta kennileiti Norður-Noregs Sundabrú, sem Vegagerðin mælir með að verði reist yfir Kleppsvík, minnir um margt á Tromsøbrú, helsta kennileiti Tromsø, stærstu borgar Norður-Noregs. Brýrnar yrðu álíka langar og álíka háar, báðar steinsteyptar á súlum og ekki ósvipaðar útlits. 19. október 2025 07:37
Yfirlýsing um Sundabraut: „Má segja að framkvæmdin sé hafin þótt engin sjáist grafan“ Framkvæmdir við Sundabraut eiga að hefjast eftir fimm ár og brautin að vera tilbúin eftir tíu ár, samkvæmt yfirlýsingu sem samgönguráðherra og borgarstjóri undirrituðu á Vogabakka í Sundahöfn síðdegis. Leggja á brautina alla leið í einni samfelldri framkvæmd og efna til alþjóðlegrar hönnunarsamkeppni um útlit Sundabrúar, verði hún fyrir valinu. 6. júlí 2021 22:15