McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Aron Guðmundsson skrifar 13. maí 2026 08:02 McIlroy settist niður á þriðju braut og var greinilega að finna fyrir óþægindum á hægri fæti. Vísir/Getty Rory McIlroy, einn besti kylfingur heims, þurfti að hætta æfingu eftir fyrir PGA meistaramótið eftir að hafa aðeins leikið þrjár holur í gær. McIlroy hefur verið að glíma við óþægindi á hægri fæti.
PGA meistaramótið hefst á morgun og er um að ræða annað risamót ársins. Téður McIlroy vann það fyrsta, Masters-mótið, og það annað árið í röð. Það ríkir mikil spenna fyrir gengi McIlroy á komandi risamóti en æfingahringur hans í gær fór ekki eins og best verður á kosið. Norður-Írinn hefur verið að glíma við óþægindi á hægri fæti síðan fyrir Truist meistaramótið í síðustu viku. Blaðra myndaðist undir tánögl hans á litlu tá. McIlroy tók málin í sínar hendur í sturtu á mánudaginn síðastliðinn eftir því sem Golf Channel kemst næst og reif umrædda tánögl af. Þar með virðist málið ekki hafa verið leyst því McIlroy átti í bölvuðu basli á æfingahring gærdagsins og aðeins þrjár kláraðar holur vekja upp áhyggjur. Sky Sports greinir frá því að McIlroy hafi yfirgefið golfvöllinn í golfbíl við fjórðu holu og að á svæðinu hafi síðan mátt sjá fólk úr teymi hans koma með nokkrar útgáfur af skóm fyrir hann að máta. Það í gert í þeirri viðleitni að finna þægilegustu útgáfuna af skóm fyrir hann að spila í þessa helgina. McIlroy hafi ætlað að spila níu holur í gær og níu holur í dag. Spurning hvort Norður-Írinn muni ná að æfa í dag. PGA-meistaramótið verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.
PGA-meistaramótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira